Hugur - 01.01.1989, Page 64

Hugur - 01.01.1989, Page 64
SIÐFRÆÐI KANTS OO AFSTÆÐISHYGGJA HUGUR skynsemi. Hann var sannfærður um að hver maður sé fær um að skoða veruleikann undir siðferðilegu sjónarhomi og að ágæti fólks sé fólgið í hlýðni þess við boð sinnar eigin skyn- semi, hollustu við sínar eigin hugsjónir, en ekki í undirgefni við neitt kennivald. í ritgerð sinni Hvað er upplýsing hvetur Kant fólk til að þora að hugsa fyrir sig sjálft og fordæmir van- þroska [Unmiindigkeit] þeirra sem una því glaðir að hafa bók fyrir skilning, prest fyrir samvisku og lækni til að segja sér hvað þeir eigi að éta.5 3. Afstæðishyggja Ég vona að mér hafi tekist að sýna fram á það að rétt sé að skilja siðfræði Kants og kenningu hans um afdráttarlausa skyldu með hliðsjón af því sem hann segir um fyrirmyndir [Ideale], eða hugsjónir, í Gagnrýni hreinnar skynsemi. Ég er reyndar ekki sá fyrsti sem skil siðfræði Kants í ljósi kenninga hans um fyrirmyndir skynseminnar. Enski heimspekingurinn T. H. Green (1836 - 1882) skildi siðfræði Kants á líkan veg.6 Green sótti mjög til kenninga Kants og líkt og aðrir hug- hyggjumenn 19. aldar, eins og til dæmis Hegel og Bradley, gerði hann kenningar Kants um skynsemina að homsteini fræða sinna. Ólíkt Kant lagði Green áherslu á að skynsemin væri afsprengi sögulegrar þróunar.7 Hann lagði áherslu á að hugsjónir skynseminnar þróuðust og endurspegluðu enn aðeins til hálfs hina raunverulegu fullkomnun. Hvort þessi raun- verulega fullkomnun á sér einhverja samsvörun í veruleik- anum veit ég auðvitað ekki. En síðar í þessari ritgerð mun ég færa rök að því að við höfum siðferðilegar ástæður til að trúa því að hugsjónir okkar geti þróast í átt til fullkomnunar eða 5 Sjá: Immanuel Kant: „Hvað er upplýsing" [Was ist Aufklárung] VIII, 35. 6 Sjá: T. H. Green: Prolegomena toEthics, 3. bók, 2. kafli. 7 Það er allt annað en auðvelt að átta sig á hugmyndum Kants um sögulega þróun skynseminnar. Ljóst er þó að hann taldi hana á einhvem hátt afsprengi sögulegrar þróunar, sjá til dæmis: Idee zu einer allgemeinen Gesichte in weltbiirgerlicher Absicht VIII, 17 - 31 og Mutmasslicher Anfang der Menschen- gesichte VIII, 107 - 123 62
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.