Búnaðarrit - 01.01.1915, Síða 10
4
BÚNAÐARRIT
Orsakir til Orsakir til þess, að fúi egg verða í æðar-
fúlla egrgja. varpi, hygg eg vera þessar fjórar helztar:
1. Vansköpuð (,,abnorm“) egg.
2. Ónæði.
3. Mismunandi náttúruhvatir æðarinnar.
4. Of lítill dúnforði í hreiðrinu.
Allar þessar orsakir til samans eða hver ein þeirra
er næg til að mynda fúlt egg. En vegna þess, að gleggra
er að tala um hverja orsökina út af fyrir sig, heldur en
þær allar í einu, kýs eg þann kostinn. Og þó kvíslast
þær oft svo hver í aðra, að ekki er hægt annað en að
þær blandist saman meira og minna.
Vansköpuð Allir, sem átt hafa þeim starfa að gegna,
egg-. að hirða varp, vita það, að stundum eru
ofurlítil æðaregg í hreiðrununum. Þetta er
nokkuð algengt í stórum vörpum. Egg þessi hefi eg heyrt
nefnd örverpi og kalla þau svo sjálfur, jafnvel þó það
eggið sé ekki seinasta eggið, sem æðurin verpur. Stund-
um finnast lika í æðahreiðrum mj'ög stór egg; eru þau
st.undum helmingi stærri en venjuleg æðaregg. Báðar
þessar æðareggjategundir eru vanskapaðar. Þriðja tegund
vanskapaðra æðareggja er skurnlaus. Þá tegundina hefi
eg sjaldnast orðið var við, stundum aldrei á vori, en
stundum einu sinni eða tvisvar.
Úr öllum þessum vansköpuðu eggjum verða aldrei
ungar. En eggin geta verið vansköpuð, þó þau sé með
venjulegri stærð, og skurn þeirra sé í lagi. Að eggin
eru ekki öll eins útbúin frá hendi náttúrunnar, sózt
bezt á því, hvernig fúleggin eru. Sum eru grænsvört
innan, og alt efni þeirra orðið að daunillum vökva; sum
eru Ijósrauð innan, og efni þeirra orðið að ostkendu
hlaupi; sum skifta sér í rauðu og hvítu og eru þó úldin.
Fleiri tegundir fúlla eggja gæti eg talið, en mór virðist
þess ekki þörf; þessar þrjár mismunandi tegundir ætti
að sanna það, að mörg eru eggin óeðlileg eða „abnorm“