Búnaðarrit

Volume

Búnaðarrit - 01.01.1915, Page 46

Búnaðarrit - 01.01.1915, Page 46
40 BÚNAÐARRIT Það má gera ráð fyrir, að meðaltaða hér hjá okkur muni, eftir sama mælikvarða og hér er, gera um 50 fóðureiningar, en meðalúthey um 33. Geta menn þá farið nærri um, hversu mikið þarf af þessu eða hinu fóðri, sem nefnt er í töflunni, móti einhverju ákveðnu af töðu eða útheyi. Én þess ber þó að gæta, að skepn- unum gengur betur að melta kraftfóðrið, og koma því næringarefnin þar að betri notum. í töflunni hefl eg nöfnin á vörunum ensk, svo að menn geti pantað eftir henni, og einnig látið verðið halda sér í enskri mynt. Yerðið var þannig í lok júlí í sumar, rétt áður en stríðið hófst. Verði fóðureining- anna breytti eg úr enskri mynt í vora mynt, lesendum til hægðarauka. Eg ætlast til, að menn veiji úr fóðurtegundunum 9, sem fyrst eru taldar. Þær eru ódýrari, og fást allar lijá fóðurvöruverzlun þeirri, er eg mintist á hér að framan. Hinar 4 síðasttöldu tegundir eru ekki á verðlista verzl- unarinnar, enda miklu dýrari, og set eg þær hér til samanburðar, af því töluvert er flutt af þeim hingað til skepnufóðurs. Hey er einkum flutt inn í harðæri, en rúgur og Molasses er mikið notað hér. Aftur á móti er ekkert flutt inn af hinum ódýrustu, til dæmis teg- undinni, sem fyrst er talin á töflunni, eða þeirri 8. í röð- inni, sem er ódýrust þeirra allra. Fyrstu tegundirnar 3, sem taldar eru í töflunni, eru baðmullarfrækökur, en 4. tegundin eru hörfrækökur. Allar þessar kökutegundir eru einkum ætlaðar kindum og kúm, og mjög góðar til mjólkur, en þó sérstaklega I. tegundin. Orðið „decorticated" merkir, að fræið, sem í kökunum er, sé hýtt, „undecorticated“ að það só óhýtt. Eitthvað hefir verið flutt hingað af frækökum, og þá aðallega frá Danmörku. Mun verðið á þeim hafa verið um 18 aura kílóið, og verður það heldur dýrara en hér segir. Frækökur þessar eru rannsakaðar af landbúnaðar- ráðaneytinu í Bretlandi, eins og allar vörur þessar.

x

Búnaðarrit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.