Búnaðarrit

Volume

Búnaðarrit - 01.01.1915, Page 74

Búnaðarrit - 01.01.1915, Page 74
68 BÚNAÐARRIT Ef menn óska þess, að eg útvegi þeim þetta áhald, heygnmuna, þá mun eg með ánægju gera það. Væri þá i æskilegt, að einn maður í hverju héraði safnaði pöntunum og sendi mér svo. Þetta er þegar farið að gera sumstaðar. Notkunarreglur fylgja hverri heygrímu. Eg vil svo enda mál mitt með þeirri ósk og von, að bændur athugi þetta velferðarmál rækilega, og van- ræki ekki að vernda heilsu sina, meðan tími er til, þegar þeim er bent á ráð til þess. Þá er vel farið. Hólmavík í nóvember 1914. Magnús Pétursson. Hvernig- nota skal lieygrímuna. Þess verður að gæta, að gúmmíhringurinn, sem að andlitinu snýr, sé hæfilega loftfyltur. Mjóa gúmmí- slangan, sem út úr hringnum gengur, er til þess að blása lofti inn eða hleypa því út; er þá ieyst frá endanum og bundið vei fyrir aftur. Áður en gríman er notuð, verður í hvert sinn að opna hana að framan, taka upp bómullar- ílöguna og vírnetið undir henni og væta litla svampinn úr vökvanum. Ekki þarf nema lítið af honum. Milli þess sem gríman er notuð, eða á hverjum degi, ef hún er daglega notuð (helzt á kvöldin), verður að þvo bæði innri sigtin og þurka vel. Einnig þvo svampinn. Er þetta nauðsynlegt hreinlæti og til þess að gríman end- ist sem bezt. Bómullina verður að endurnýja á hver- jum degi. Mjórri endi gúmmíhringsins á að vita upp, þegar gríman er fyrir andlitinu, en litla slangan niður. Ef vökva vantar og ekki er hægt að ná í hann, má láta nægja að væta svampinn eingöngu úr ediks- blöndu eða jafnvel hreinu vatni. Þó er bezt að hafa vökvann. Magnús Pétursson. Grima sú, sem hér er lýBt, er til sýnis í skrifstofu Búuaðar- félags íslands. Ú t g.

x

Búnaðarrit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.