Búnaðarrit - 01.06.1940, Qupperneq 9
Hjörtur Snorrason,
fyrrum skólastjóri og alþingismaður.
Stutt æíiágrip.
(Búnaðarritið hefir undanfarin ár birt æfiágrip ýmissa helztu
forgöngumanna þjóðarinnar í landbúnaðarmálum. Nú er verið
að reisa Hirti Snorrasyni minnisvarða á Ilvanneyri. Þótti þvi
vel hlíða að Búnaðarritið minntist jafnframt þessa merkis-
manns. Einn af nemendum Hjartar Snorrasonar, frá Hvann-
cyri, hefir skrifað greinina. Ritstjórinn).
I.
í fimmtíu ára sögu Hvanneyrarskólans eru það tveir
menn, sem gnæfa hæst: Hjörtur Snorrason og Halldór
Vilhjálmsson. Þeir voru að mörgu leyti líkir. Báðir
óvenjulega þróttmiklir og stórbrotnir í lund. Báðir
höfðu það til að varpa fram ómildum orðum um menn
eða málefni, sem þeiin var ekki að skapi, en áttu líka
viðkvæmt og göfugt hjarta. Báðir ræktu hlutverk sitt
afburða vel, og báðir unnu Hvanneyri og skólanum af
lífi og sál. Báðir afburðamenn.
Það er vitanlega rétl, að eftir Halldór liggur miklu
meira verk. En þess ber að gæta, að fyrst og fremst
var starfstími hans við skólann 29 ár, en Hjartar að
eins 13 ár. Því má beldur ekki gleyma, að Hirti var
í upphafi fengið svo þröngt verksvið, að nálega mátti
segja, að hann væri lieftur á höndum og fótum eins
og fyrirrennarar hans, sem eklci máttu kaupa sæng í
rúm nema með amtmannsleyfi. Aftur á móti fékk
Halldór svo miklu rýmri aðstöðu, að hans góðu hæfi-
leikar gátu notið sín að fullu. í sambandi við þetta