Búnaðarrit - 01.06.1940, Page 17
BÚNAÐARRIT
IX
Hinn 15. nóv. 1892 fauk kirkjan á Hvanneyri í af-
takaveðri. Staðnæmdist hún rétt norðanvert við
íbúðarhúsið og brotnaði mikið. Hún var aðeins 9 ára
gömul, en hafði verið mjög óvönduð að byggingu.
Sennilegt, að hún hefði enzt lengur, ef Hjörtur hefði
haft hönd í bagga með byggingu hennar.
Árið 1 !)03. Sléttað í túni 1425 freh.faðmar. Plægður
og herfaður mýrarhlettur, sem áður var búið að
þurrka, hann var um tvær dagsláttur að stærð". Graf-
inn framræsluskurður 96 faðma langur, 4320 ten.fet.
Vörzluskurður 80 faðma langur. — Reist heyhlaða
25 X 12 X 7 álnir og ris að auki, ineð votheysgryfju
12 X 5 X 6 álnir.
Nóttina milli 5. og 6. október brann íbúðarhúsið,
sem jafnframt var skólahús, til kaldra kola með ná-
lega öllu, sem í því var. Fóllc bjargaðist að vísu, en
suml með naumindum, og margir misstu aleigu sína.
Þar hrann meðal annars allur vetrarforði skólbús-
ins, bæði búfjárafurðir, kornvara og kol, og nálega
allir innanstoklcsmunir ])ess, kennslutæki öll og tals-
vert af peningum. Þar að auki mikið af öðrum verð-
mætum munum, svo sem allar bækur Hjartar, um
1500 bindi, og aðrar eigur þeirra lijóna og hirzlur og
fatnaður flestra annara heimilismanna. Það var til-
viljun ein að ekki varð manntjón. Svefnherbergi öll
voru á efri hæð hússins. — Um nóttina valtnaði
Hjörtur og leit út um glugga á svefnherbergi sinu, sá
hann þá geysimikinn reyk, sem lagði norður af hús-
inu. Þegar hann þá samstundis opnaði herbergið, var
gangurinn upp á loftið fullur af reyk, og örfáum
augnablikum síðar gaus loginn upp úr miðjum stig-
anum, þeim eina sem til var í húsinu. Varð því allt
fólkið að fara út um glugga á suðurenda hússins;
mun þar hafa verið um 7—8 álna hæð niður á jörð.
Þessi hruni var óbætanlegur hnekkir fyrir skólann,
og verður tjónið allt ekki töluin talið, því auk þess,