Búnaðarrit - 01.06.1940, Blaðsíða 19
BÚNAÐARRIT
XI
Stefán heitinn Stefánsson skólameistari grein um
þetta efni, og mælti fast með því, að skólinn yrði
færður. En af því varð þó ekki sém betur fór.
Árið 1904. Sléttað í túni 1590 ferh. faðmar. Graf-
inn framræsluskurður 5850 ten. fet. Hlaðinn túngarð-
ur 32 faðxnar að lengd.
Þá var og byggt skólahúsið. Stærð þess var:
G^unnflötur 32 X 14 álnir. Hæð frá kjallaragólfi til
mænis 15% al. Bygging þessi var ti-aust og vönduð,
tvílyft með steinlímdum kjallara, en að öðrn leyti
járnvarið timburlnis. Utan á grindina var klætt með
plægðum borðum, þá pappi, aftur plægð borð og
pappi, svo þakjárn. Kennsla byi'jaði svo í nýja hxis-
inu 1. nóvember, og tóku þeir próf um voi'ið 1905,
sem annars hefðu ált að lúka námi vorið 1904, ef
ekkert óhapp hefði að höndum borið. Vitanlega fengu
þeir ólceypis kennslu og eitthvert lcaup að auki, svo
árið fór ekki til ónýtis t'yrir þeim.
Árið 1905—1906. Sléttað 1640 ferh. faðmar. Grafinn
vöi'zluskurður 30 faðma langur. Framræsluskurður
1620 ten. fet. Lagður túnvegur 362 faðmar að lengd,
5 álna breiður. Byggt fjáx'hús yl'ir 70 sauði. Veggir
úr torfi, framgafl úr tirnbri. Undir torfið á þakinu
var notað járn af húsinu, sem brann.
Þá var og byggð kirkja í stað þeirrar, sem fauk.
Stærð 14 X 10 álnir, auk forkirkju 4X4 álnir með
26 álna háum turni.
Ég hefi nú stiklað á því helzta af framkvæmdum
Hjartar, meðan hann var skólastjóri á Hvanneyri.
Hilt verður aldrei talið né metið til fulls, hve milda
vinnu hann lagði á sjálfan sig, til þess að koma öllu
þessu verki í framkvæmd. Því þótt hann væri óvenju-
lega þróttmikill maður, var hann orðinn lúinn og
heilsan farin að bila af of mikilli áreynslu, þegar
hér var komið.