Búnaðarrit - 01.06.1940, Blaðsíða 21
BUNAÐARRIT
XIII
peningi, auk hinna mildu jarðabóta, sem hann vann
sjálfur að, en hans skoðun laut þar i lægra haldi
hjá þeim, sein valdið höfðu, svo að honum var
sparkað frá skólanum um leið og árleg fjárveiting
til hans var fjórfölduð.
Ég hefi ekki getað náð í upplýsingar um það, hve
stóru búi Hjörtur tók við á Hvanneyri. En vorið
1890 — fjórum árum áður en Hjörtur tók við, var
búið: 10 kýr, 4 geldneyli, 38 ær og 4 hross, sem alls
var metið á kr. 1790.00
Vorið 1892 er búpeningur metinn á kr. 2720.00.
Þegar svo Hjörtur skilar af sér vorið 1907, er bú-
stofninn þessi:
Nautgripir 60, metnir á kr. 5756.00 (kýrin 133).
Sauði'é 480, metið á kr. 7085.00 (ærin 16—18).
Hross 21, metin á kr. 1722.00 (hrossið 100—120).
Þetta er engin smáræðis aukning, og þegar þess er
gætt, að eignaaukning skólans var engu minni á öðr-
um sviðum, sbr. Hvanneyrarskólinn 50 ára eftir Guð-
mund Jónsson lcennara, má það Ijóst verða, að hér
var enginn meðalmaður að verki.
V.
Hjörtur var afbragðs kennari. Kennsla lians var svo
Ijós og skipuleg, að hinar torskilduslu námsgreinar
urðu skemmtilegar við meðferð hans. Hann hafði
miltið yndi af þvi að kenna, og æði oft kom það fyrir
í kennslustundum hans, að hvorki hann sé nemendur
hans veittu því athygli, hvað tíminn leið fljótt, og var
þá liðið mikið á aðra klukkustund er að var gætt. —-
Hann var svo víðlesinn og stálminnugur, að þekking
hans virtist alveg ótæmandi. Sem dæmi nefni ég atvik,
sem mér er sérstaklega minnisstætt.
Nemendur og annað heimafólk, kom saman á mál-
fundi á laugardagskvöldum, og var dagskrá hvers
fundar hirt að morgni fundardagsins. Hjörtur leit