Búnaðarrit - 01.06.1940, Síða 24
XVI
BÚNAÐARRIT
fóður og fénað, og' rak nú hver framkvæmdin aðra.
Fyrsta sumarið byggði hann íbúðarhús og fjós yfir 12
nautgripi. Árið eftir fjárhús úr steinsteypu yfir 90
fjár og hesthús yfir 11 hesta, allt undir einu þaki, og
heyhlöðu yfir 500 hestburði af heyi. Svo girti hann
tún og engjar með fjárheldri girðingu, sléttaði nálega
allt túnið, og fékk meira en helmingi meiri töðu af
túninu síðustu árin en þau fyrstu. Árið 1913 lengdi
hann hlöðuna um helming og ætlaði svo að byggja
vandað fjós árið eftir, en það fórst fyrir sökum harð-
indanna 1914, og vorið 1915 flutti hann að Arnarholti.
Eflir breytinguna á Hvanneyrarskólanum var Hirti
veitt kennarastaða við skólann, og kenndi hann sjálf-
ur fyrsta veturinn, sem hann bjó á Slceljabrekku. Þrjá
næstu vetur fékk hann menn til að annast kennsluna
fyrir sig, en sagði svo stöðunni lausri að þeim Líma
liðnum.
Mestan hluta þess tímabils, sem Hjörtur dvaldi í
Andkílshreppi, fyrst á Hvanneyri og síðan á Skelja-
brekku, hafði hann á liendi ábyrgðarmestu trúnaðar-
störfin í sveitinni. Hann var í hreppsnefnd Andakíls-
lirepps 1895—1915 og oddviti hennar 1900—1915,
hreppstjóri 1900—1915. Sýslunefndarmaður og vara-
maður 1896—1915. Ennfremur var hann vara-amts-
ráðsmaður í Suðuramtinu 1902—1907 og sat amts-
ráðsfundi nokkuð af þeim tíma. Búnaðarþingsfulltrúi
1903—1908. Hann gekkst fyrir stofnun Búnaðarsam-
Itands Borgarfjarðar 1910 og var um allmörg ár for-
maður þess.
Hann átti sæti í stjórn Sláturfélags Suðurlands
1907—1915, og þegar það félag byggði sláturhús í
Borgarnesi 1908, tólc hann við forstöðu þess. Gegndi
hann því starfi, þangað til bændur í Borgarfjarðar-
og Mýrasýslum slitu sig úr tengslum við félagið 1920
og stofnuðu sjálfstætt félag, er nefndist Sláturfélag
Borgfirðinga.