Búnaðarrit

Årgang

Búnaðarrit - 01.06.1940, Side 28

Búnaðarrit - 01.06.1940, Side 28
XX BÚNAÐARRIT Arnarholt er mildum mun stærri jörð en Skelja- brekka og hæfði því betur stórhug Hjartar og bú- rausn. Hann bjó þar miklu rausnarbúi til dauðadags. Hann lézt 1. ágúst 1925, tæplega 66 ára að aldri. Hjörtur var hár meðalmaður á vöxt og herðabreið- ur, þrelcinn og allur sterklegur, lcarlmannlegur á velli, vel vaxinn, snar í hreyfingum og rammur að afli, fremur liöfuðstór, brúnamikill og loðbrýnn, eygur manna bezt; hárið var jarpt, skeggið rauðbrúnt, yfirbragðið hraustlegt og mikilúðlegt. Svo vel bar hann aldurinn, að flestir mundu ætla hann miklu yngri en hann var. Engum sem sá hann gat dulizt, að hann var afburðamaður. Hann var skap- festumaður og geðríkur og gat verið andstæðingum sínum þungur í skauti; en vinátta hans eins var líka betri en vinátta margra meðalmanna. Ekkja Hjartar, Ragnheiður Torfadóttir, lifir enn. Þau eignuðust þrjá syni: elztur þeirra er 7'orfi, sýslu- maður og bæjarfógeti á ísafirði, hinir Snorri og Ás- geir, sagnfræðingur, eru til heimilis hjá móður sinni i Reykjavík. Sigurj. Kristjánsson Krumsliólum.

x

Búnaðarrit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.