Búnaðarrit - 01.06.1940, Page 60
160
BÚNAÐARRIT
mælingamaður yrði, timans vegna, að láta sér nægja að
koma á nokkra hæi i hverju mælingarumdæmi lil
þess að athuga starf hvers trúnaðarmanns, en það
ætti eigi að síður að geta gefið honum glögga og rétta
mynd af því, því að hver einstakur trúnaðarmaður
gæti aldrei fyrirfram vitað, á hvaða bæjum eftirlitið
yrði framkvæmt. Sennilega yrði að skipta landinu
niður í tvö eða þrjú umdæmi og fara yfir eitt þeirra
á ári.
5. Ég vil eindregið leggja til, að gerð verði tilraun
með að viðhafa gæðamat á jarðabótum og styrlcja
1. flokks jarðabætur mun hærra en 2. flokks í því
skyni að fá jarðabótamenn til þess að vinna með meiri
vandvirkni en nú á sér víða stað.
Að endingu vil ég taka það fram, að þessa grein
ber yfirleitt ekki að skoða sem andmæli gegn grein
Á. L. J., því að ég er henni á margan hátt sammála,
en hún á að vera þáttur i umræðum, sem ég tel æski-
lcgt að fari fram um þetta mikilvæga mál, sem Á. L. J.
svo þarflega hefir orðið málshefjandi að.