Búnaðarrit - 01.06.1940, Page 70
170
B Ú N A R A R R I T
Það er aðallega eitt atriði í grein G. J. sem vekur
athygli mína og ég tel að þurfi að taka til rækilegrar
ihugunar. Það er tillaga hans um það, að taka jarða-
bætur út eftir gæðcimati. Fyrsta flokks jarðabætur
fengju hæsta styrk, og í þann flokk kæmu þær einar
umbætur, sem talizt gætu gallalausar, en annars flokks
jarðabætur yrði styrktar mun minna á hverja verk-
einingu. Sé þetta framkvæmanlegt, er ég ekki í vafa
um, að þessi styrkveitingaaðferð yrði öflug svipa á
bændur um að vanda jarðabætur sínar. Reynslan
befir sýnt það, að erfitt, eða jafnvel ómögulegt hefir
verið að knýja bændur almennt til vöruvöndunar á
framleiðslu sinni á annan hátt en þann, að flokka
vörurnar og greiða breytilegt verð eftir gæðum. Ég
hefi álilið að mjög miklir örðugleikar væru á því að
koma við slíku gæðamali við úttekt jarðabóta, en
þegar einn af reyndustu trúnaðarmönnum okkar
gerir það ákveðið að tillögu sinni, að sú leið verði
farin, j)á fara mjög að renna á mig tvær grímur.
Vonandi verður hægt, áður en langt líður, að hafa
fund eða námsskeið með öllum trúnaðarmönnum
landsins, til þess að ræða þar ýms vandamál varðandi
störf trúnaðarmannanna. Þessi tillaga G. J. þarf ein-
mitt að ræðast á slíkum fundi. Ég vil vona að á næsta
ári verði hægt að koma slíkum fundi á. Það er hin
mesta nauðsyn, og mundi áreiðanlega verða til góðs
fyrir alla aðila, sem þetta mál snertir.
G,. J. talar um í sinni grein, að það vanli eftirlit með
starfi trúnaðarmanna og að þá vanti leiðbeiningar,
handbók til þess að fara eftir.
Hvað síðara atriðið snertir, vöntun á prentuðum
leiðarvisi, verð ég mjög að draga í efa, að það sé byggt
á fullum rökum. Eftir setningu jarðræktarlaganna
1923 var samin all ítarleg handbók, til leiðbeininga
fyrir trúnaðarmenn. Þar eru reglur um það á hvern
hátt þeim beri að meta og taka út liinar ýmsu teg-