Búnaðarrit - 01.06.1940, Síða 71
BÚNAÐARRIT
171
undir jarðabóta. Nú hefir jarðræktarlögunum verið
breytt hvað eftir annað síðan og síðast 1936. Eftir þá
breytingu var áætlunin að gefa út prentaða handbók
fyrir trúnaðarmennina. En strax rúmu ári eftir að hin
nýju jarðræktarlög voru sett, var þegar vitað að lögin
vrðu tekin til endurskoðunar að nýju. Á Búnaðarþingi
1939, eða fyrir hart nær tveimur árum síðan var
skipuð nefnd til þess að endurskoða jarðræktarlögin.
Mun sú nefnd leggja breytingartillögur sínar fyrir
Búnaðarþing það, er saman kemur nú í vetur. Það
þótli þvi ekki rétt að gefa út handbók, sem yrði senni-
lega ekki minna en 8 til 10 arka bólt, fyrr en séð væri
livaða breytingum lögin tækju að þessari endurskoðun
lokinni. En til viðbótar við hina gömlu liandbók,
sem enn hefir gildi að mörgu leyti, þótt úrelt sé orðin
og ófullnægjandi, voru gefnar út fjölritaðar leið-
beiningar vorið 1937 um ýms atriði, varðandi úttekt
og mat jarðabóta. Síðan hefir svo verið gefin út all-
nákvæm reglugerð um jarðræktarlögin. Sú reglugerð
er ekkert annað en starfsreglur fyrir trúnaðarmenn.
Ég líl því svo á að skortur á rituðum leiðbeiningum
hamli starfi trúnaðarmanna ekki mjög. Dreg ég það
og af því, að ekki korna mjög margar fyrirspurnir
til Búnaðarfélagsins um vafaatriði varðandi úttekt
jarðabóta. Það er aldrei hægt að gefa algildar reglur
á þessu sviði, þær geta aðeins orðið til liliðsjónar og
leiðbeininga. Trúnaðarmennirnir hafa oftar en einu
sinni verið beðnir að láta Bf. ísl. i té álit sitt og til-
lögur um mat og úttekt jarðabóta. Ýmsir þeirra hafa
gert þetta og sumir rækilega. Þessar athuganir voru
liafðar til hliðsjónar, þegar þær bráðabirgðareglur
voru settar, sem nú er farið eftir. Þegar þeirri endur-
skoðun jarðræktarlaganna verður lokið, sem nú stend-
ur yfir, á að geí'a út ítarlega handbók, en ég lít svo á
að ekki hafi verið rétt að gera það, meðan endur-
skoðun jarðræklarlaganan slendur yfir. Nefnd manna