Búnaðarrit

Volume

Búnaðarrit - 01.06.1940, Page 72

Búnaðarrit - 01.06.1940, Page 72
172 BÚNAÐARRIT á að annast um útgáfu slikrar handbókar. í þeirri nefnd, sem sennilega ætti að vera skipuð 5 mönnum, ættu að eiga sæti 3 trúnaðarmenn, ásamt jarðræktar- ráðunaut Biinaðarfélagsins og búnaðarmálastjóra. Ég vænti þess að Búnaðarþing í vetur taki þetta mál til íhugunar, jafnframt því, sem þar verða ræddar aðr- ar breylingar á jarðræktarlögunum. Þá ræðir G. J. um það, að eftirlit vanti með störf- um trúnaðarmanna. Virðist bann helzt hallast að því að ráðuneylið, eða Bf. ísl. fyrir þess hönd, skipi yfirtrúnaðarmann fyrir allt landið. Hann ferðist síðan um nokkurn hluta landsins árlega og væri með trúnaðarmanni viðkomandi héraðs nokkurn tíma, og hefði eftirlit með því hvernig hann hagaði störfum sínum. Þá gæti þessi yfirtrúnaðarmaður einnig gert athuganir um fyrri ára mælingar trúnaðarmannsins. Ætti að verða verulegt gagn að þessu fyrirkomulagi, og væri hér nægilegt starf fyrir mann yfir árið. Því að þá ætti þessi sami maður að endurskoða mælingaskýrsl- urnar að vetrinum, halda spjaldskrá yfir jarðabætur og styrkveitingar til einstakra jarða, eins og gert hefir verið síðustu árin, ásamt ýmsu fleira snertandi þetta. Bf. ísl. hefir alls ekki getað sinnl þessu, auk allra þeirra verkefna, sem starfsmenn þess hafa með höndum. Og fjárráð félagsins hafa verið það þröng að það hefir ekki getað ráðið sérstakan mann í þessu skyni. Eftir- lit með störfum trúnaðarmanna hefir verið fram- kvæmt af mönnum, sem einungis hafa gelað sinnt þvi sem aukastarfi. Þó mun trúnaðarmönnum alltaf hafa verið gefnar leiðbeiningar og vafaatriði úrskurð- uð tafarlaust, eftir því sem óskað hefir verði eftir og unnt hefir verið að koma við. Sennilega mundi verða nokkurt gagn að slíku eftir- liti, sem duglegur og vel hæfur maður gæti gefið sig óskiptan að. En eigi að taka upp þess konar eftirlit með starfi trúnaðarmanna, er sjálfsagt að lögfesta

x

Búnaðarrit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.