Búnaðarrit - 01.06.1940, Blaðsíða 74
Garðjurtir og kvillar.
Eftir Ingólf Davíðsson.
Sumarið 1940 var óvenjulega óhagstætt garðrækt-
inni. Skipti nijög í tvö horn frá því í fyrra, en þá var
veðrátta hlý með afbrigðum og uppslcera í hezta lagi.
Nú var sumarið hrein og bein þolraun fyrir garðjurt-
irnar. Þau afbrigði matjurta, sem sæmilega uxu í
sumar, eru engir aukvisar, þeim má treysta í flestum
árum. — Til samanburðar læt ég fylgja nokkrar tölur
frá veðurstofunni lil marks um tíðarfarið í Reykja-
vík mánuðina maí—sept. árin 1939 og 1940 ásamt
meðalveðráttunni:
Hiti Sólskinsstundir Úrltoma mm
Norm. 1939 1940 Norm. 1939 1940 Norm. 1939 1940
Maí 6,0 8.7 7,6 210,5 122,4 131,0 49,1 42,3 81,0
.Túní 9,2 10,5 9,7 201,8 223,9 135,8 47,9 35,7 67,0
Júlí 10,9 13,0 11,2 179,6 308,4 208,8 49,0 27,8 27,8
Ágúst 10,3 12,3 10.1 164,9 133,0 138,4 52,0 164,8 75,2
Sept. 7,5 11,8 7,1 122,2 74,8 119,9 88,6 68,5 41,2
Lágmark loftliitans 3° eða lægra:
1939 Þ.22. i tnaí 3,0°.
1940 Maí: Þ. 3. 2,6°, 5. 0,4°, 6, 2,8° , 7. 1,9 °, 9. 0,2 ", 10. 0,7°,
14, 1,8°, 15 . 2,2°, 16. 1,7°, , 23. 3,0° og 24. 2,7°
— Sept.: Þ. 7. 3,0 , 8. 0,1 °, 10. 2,9°, 11. 2,1°, , 14. 1,5°,
15. -h 2,0°, , 16, 2,2 °, 17. : 2,7° og 21. 0,7° .
Mestu munar á hita og sólfari í ágúst. Sennilega
er munurinn víða mikið meiri en hér í Reykjavík.
Við lágmarkslofthitann er það að athuga að oft frýs
í görðum þótt lofthiti sé 1—2° ofan við frostmark.