Melkorka - 01.05.1945, Blaðsíða 19
GROÐURJARÐAR
Eftir Ólöfn Árnadóttur
„Vorið er komið og grundirnar gróa“
Vorið er kornið með sól og nýjum tæki-
færum, tækifærum til þess að klæða landið
og móta gróður jarðar. Hver vill ekki leggja
hönd að því verki? Hefur þú aldrei fengizt
við það? Þá er ekki eftir neinu að bíða.
Þetta vor er ágætt fyrir byrjendur.
Hvað segir þú um að reyna við trén? Ef
til vill kaupirðu ung tré í skógræktinni, eða
ætlarðu sjálf að ala þau upp? Það er ennþá
skemmtilegra. Þú byrjar að sá, án þess að
hafa nokkra trú á árangrinum. En viti
menn, það kemur sá dagur, að ótal smáir
grænkollar skjóta upp höfðinu í sáðblettin-
um, að minnsta kosti færð þú ekki betur
séð. Þú rýnir og rýnir, undrandi, með nefið
ofan í moldinni. Jú, það verður ekki um
villst. Þessi blöð eru öðruvísi en gróðurinn
umhverfis, þau eru öðruvísi en arfablöðin.
Það þýðir þá eitthvað að sá, eins og bækurn-
ar segja. Það kemur vissulega eitthvað grænt
upp af kornunum. — Svo líða dagar, litlu
grænkollarnir liækka og vaxa. Þeir eru ynd-
islegir og þegar liaustar að, hlúar þú að þeim
eftir föngum, svo holklakinn bylti þeirn
ekki um koll. Aftur kemur vor eftir vetri og
grænkollarnir, sem lil'a, eru nú engir livít-
voðungar lengur. Við getum farið að kalla
þá ungtré og dreifa þeim yfir stærri svæði.
Þú ert allt í einu orðinn einskonar Steinn
Bollason með hundruð barna, sem hrópa
á þig, áburð og vatn, áburð og vatn, og eins
og Steinn mátt þú ekkert þeirra missa.
En varaðu þig á að rækta matjurtir, því að
þá finnst þér ekkert sumar, ef þú hefur ekki
grænmeti á matborðinu frá vori og fram á
Frú Ölöf athugar blómkál úr garði sinum
vetur. Þú verður ergileg á ferðalögum yfir
því að liafa ekki „sumar" á borðum og það
er varla að þér finnist þú geta sent krakk-
ana að heiman frá þessari hollu og skemmti-
legu fæðu.
Ræktaðu blóm og þú ert bundin þeirn
æfilangt. Þau eru hið árlega sumaræfintýri,
sem þú vilt ekki án vera. Ræktaðu tré og þú
vildir helzt geta tekið þau með þér inn í
eilífðina.
Láttu þetta allt saman eiga sig. Þú losnar
við mikla fyrirhöfn og margar bollalegging-
ar, en þú glatar heilum heimi yndisþokka
og jafnvel vináttu. Því að þegar trén vaxa
hætta þau að vera börn og verða þess í stað
vinir þínir.
MELKORKA
15