Melkorka - 01.05.1945, Blaðsíða 41

Melkorka - 01.05.1945, Blaðsíða 41
Hún hafði setið í þýzkum fangabúðum á- samt hollenzku konunni Rosu Manus, fyrsta varaforseta alþjóðasambandsins, sem dó í fangabúðunum af illri meðferð og pyndingum nazista. Um örlög þessar'a tveggja vitum við. En livað hefur orðið um allar hinar, norsku, dönsku og pólsku konurnar, eða fulltrúana frá Balkanlöndunum? Alls staðar hafa ógnir styrjaldarinnar dunið yfir, ofsóknir, pynd- ingar og dauði orðið hlutskipti þúsunda kvenna. En í þessum ragnarökum hefur leiftrandi orðstír konunnar borizt frá hverju landinu á fætur öðru. Hún hefur barizt á heimavígstöðvunum, livorki látið vítisvélar né eldsprengjuregnið hræða sig. Hún hefur tekið að sér erfiðustu störf, sem talin voru „ókvenleg" og ósanrboðin hinu „veikara kyni“ í þeim heimi, sem nú liggur í rústum. Hún hefur verið kvalin og pynd- uð til sagna, en látið lífið fremur en segja til félaga sinna. En úr þjáningum og eldi styrjaldarinnar rís hin nýja kona framtíðar- innar, konan, senr situr á alþjóðaþingum komandi ára við hlið félaga síns, karlmanns- ins, og skipuleggur hinn nýja heim. Minningar- og menningarsjóður kvenna Sjóður þessi var upphaflega stofnaður eft- ir ósk og með dánargjöf hins mikla braut- ryðjanda í kvenréttindamálum, Bríetar Bjarnhéðinsdóttur, en verður ekki bundinn við nafn hennar, heklur heitir Minningar- og menningarsjóður kvenna og nemur hann nú 14207 krónum. Einnig hafa borizt gjafir til minningar um aðrar konur að upphæð 3100 krónur. Myndaœvisagna- og handritasafn 1 sambandi við gjafir, senr berast sjóðn- um til minningar um aðrar konur, er fyrir- lnigað að koma upp myndasafni, ennfremur æviatriða- og handritasafni, hafi þær látið eftir sig eitthvað af rituðu máli. Hugmynd um útgáfustarfsemi hefur einnig komið til tals. Sjóðurinn er í umsjá Kvenréttindafélags íslands. Á landsfundi kvenna í vor var sjóð- málið rætt, en enn hefur ekki verið ákveðin skipulagsskrá fyrir sjóðinn. En ákveðið hef- ur verið að styrkja konur til alls konar náms og getur verið, að veitt verði úr sjóðnum á komandi hausti. Einnig er meiningin að hafa vissan söfnunardag á ári fyrir sjóðinn og verður liann ákveðinn síðar. Laufey Valdimarsdóttir, núverandi for- maður Kvenfélagsins, kornst svo að orði við blaðamenn, er hún ræddi um þetta mál: Þótt konur hafi jafnan rétt til náms í skólum landsins, liafa þær ekki sama kaup og eiga að því leyti erfiðari aðstöðu til náms. Auk þess er almenningsálitið á rnóti námi kvenna, það er álitinn óþarfi, að þær læri annað en það, sem lýtur að luisstjórn. Við viljum og álítum þörf á að styrkja þær til margskonar náms. Þegar þeir góðu tímar koma, að fullkomið jafnrétti er komið á milli kynjanna, ætti þessi sjóður ekki að vera bundinn við konur einar. Það ersvo mikil nauðsyn á aukinni menn- ingu og menntun, að það verður aldrei ó- þarfi að safna fé i sjóð til aukinnar menn- ingarstarfsem i. MELKORKA 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Melkorka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.