Melkorka - 01.05.1945, Blaðsíða 40

Melkorka - 01.05.1945, Blaðsíða 40
einnig frelsi og mannréttindi fyrir indversk- ar konur. Við krefjumst frelsis til að ráða okkur sjálf og njóta gæða liins ríka lands okkar og við köllum á samúð kynsystra okk- ar um allan heim og fylgd við hinar rétt- mætu kröfur okkar. Ein af þessum konum, sem mér fannst eins og vera systir Aðalbjarg- ar (ekki beinlínis af því, að þær væru svo líkar í útliti, heldur var eitthvað í fari þeirra, sem vakti þá tilfinningu hjá mér, að Jrær hefðu alizt upp hjá sömu foreldrum) var prýðilega mælsk, og allar töluðu þær á- gætfega ensku. Sú með rauða blettinn á enninu var ímynd hljóðleikans og kvrrðar- innar, hún minnti á lygnt vatn inni í græn- um skógi, og þó hún væri ekki eins mælsk og „systir“ Aðalbjargar, þá fann maður, að undir þessu hljóða yfirborði ólgaði kraftur og hiti, sem hafði sterk áhrif á hlustendur. Þessir Jrrír fulltrúar f'engu mig til að dást að indversku þjóðinni og gefa henni alla mína samúð. Sjálfar voru þær ímynd kven- legs yndisjrokka og manngöfgis. Lady Astor, aljringiskonan enska, sem margir kannast við, mætti einn dag á fund- inum. Hún er hraðmælsk og virtist vera verulega í essinu sínu, Jregar hún var komin í ræðustól. Hún var eindreginn fylgismaður Chamberlains og studdi stefnu lians í utan- ríkismálum, enda lagði hún áherzlu á Jrað í ræðu sinni, að hvað sem það kostaði, yrði að koma sér vel við Hitler. Chamberlain, sem með Miinchensamningnum 1938 af- henti Hitler Tékkóslóvakíu og Jrar með 3ja milljóna manna lier útbúinn nýtízku vopn- um, virtist eiga ágætan talsmann, Jrar sem frúin var. Öll ræða hennar var livatning til fulltrúanna að beita áhrifum sínum móti hervæðingu, jafnvel þó lönd Jreirra væru í hættu fyrir nazismanum. Þetta var víst köll- uð friðarstefna í Jrví herrans ári 1939. En hvernig dæmir sagan það í dag? Einhver merkasta kona fundarins var tékkneska Jíingkonan Plemankova. Hún var ein á meðal þeirra fáu Jringmanna, sem hafði djörfung til að heimta, að Tékkar Káðhús Kaupmanriahafnar, þar scm fundurinn var settur verðu frelsi sitt, þegar Hitler ógnaði þeim frá öllum hliðum, og orðlögð var hún fyrir sínar hvössu og djörfu ræður. Hún missti þingsæti og allar eigur, þegar Jrýzki nazism- inn lagði undir sig land hennar. En ekkert bugaði kjark hennar. Hún var bardagakon- an og lieitust, Jregar á hólminn var kornið. Plemankova var ekki liá, en nokkuð Jrrek- vaxin, mjög glaðleg og hláturmild, og þeir, sem þekktu liana, sögðu, að hún liefði mikla kímnigáfu. Ég talaði tvisvar við hana, og hún vissi fjölmargt um ísland. Þegar fund- inum var lokið, vildi hún fara strax heim á leið um kvöldið, en Jrá fékk hún boð um það, að þýzk yfirvöld bönnuðu benni að fara yfir Þýzkaland. Er hún hafði beðið í tvo daga, Jroldi hún ekki mátið lengur, og fór í trássi við öll nazistavöld heim til sín, og fréttum við seinna, að hún hefði komizt heilu og höldnu til Prag. Frú Plemankova vissi vel, að líf hennar var í hættu, ef lnin héldi áfram að búa í Tékkóslóvakíu. En hún vildi hvergi ann- ars staðar vera. Landið hennar hafði aldrei þarfnazt hennar jafn mikið, eins og hún sagði sjálf. Hve lengi hún starfaði í leyni- hreyfingunni tékknesku, áður en hún var handtekin, er mér ekki kunnugt, en fyrir rúmu ári síðan barst staðfest fregn frá Eng- landi um það, að hún hefði verið hengd. 36 MELKORKA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Melkorka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.