Melkorka - 01.05.1945, Side 36

Melkorka - 01.05.1945, Side 36
SIGRÍÖUR EINARSDÓTTIR frd Munaðarnesi: Blinda stúlkan Þú blinda stúlka, aðeins Jimmtán ára, hve yndislega hreinn er svipur þinn. Með bjarta lokka, er liðasl yfir enni og litla spékoppinn i hœgri kinn. Svo milt er brosið yfir augum þínum, sem ylur húms um Ijúfa sumarnótt. Þitt mál er stillt og tcert, sem trega laugað, þú talar lágt og kringum þig er hljótt. Þú lilustar nœm og fimir fingur leita og firma nál og þráð og vefinn sinn. Úr hvitum loþa lengist þessi vefur, eins liljuhvítt er allt um huga þinn. í ómi og söng er imynd þinna drauma og ilmi blóma er vefst um þina sál. Þín hugsun öll er hljómur, orð án mynda, þú liefur engum sagt þin leyndarmál. Þú skynjar blómaangan, mýkt og mildi, og mjúkir fingur strjúka hin gramu blöð. Er vorsins geislar verrna þig og blómin, þá verður þu svo innilega glöð. En rauðleil birta og bjarmi lmitra skýja, sem bólsturueggur augum lykur sýn. Þú fálmar mjúkurn höndum, hlustar,finnur hvern hlut úr órccðs fjarlœgð leita þin. Þú blinda stúlka, aðeins fimmtán ára, hvað elskar þú svo lreitt, að frá þér skín svo fögur tign, svo rnjúk og hógvcer mildi, sern morgunljómi opni jöklasýn? eldrainir hugsi um og leiki við barnið. Sá pabbi, sem aldrei hefur skipt á bleiju á barninu sínu eða legið á gólfinu og leikið við það, á síðar erfitt með að ná því eðlilega og giaða sambandi við barn sitt, sem hver faðir lilýtur að óska sér. Barnið lærir að bera virðingu fyrir honum og kannski vera liálf hrætt við hann og þá verður ómögulegt fyrir pabba að vera félagi barnsins síns, hve gjarn- an sem hann vill. Nei, ef barnið þorir yfir- leitt að tala í einlægni við foreldra sína, kemur það til mömmu. Grundvöllur þessa sambands við móðurina, sem þó oft vantar svo mikið á, var lagður snemma, kannski þegar barnið fyrst, og svo hvað eftir annað, sá brosandi hugfangið andlit yfir sér, fann Iiendur taka varlega á sér og heyrði blíðu, glöðu röddina. Þetta allt lærir barnið að þekkja aftur, og þykja vænt um. — Barn- ið þarf lifandi og tryggt samband bæði við föður og móður, það þarf að finna, að þeim þyki báðum jafn vænt um það. Feð- ur þurfa að eignast einlægni barna sinna og fá meiri áhuga fyrir barnameðferð og fyrir smá viðfangsefnum barnsins. Líf þeirra yrði áreiðanlega ríkara og hjónabandið oft á tíðum betra. Mæður þurfa hjálp til að sjá um ungbörnin, þrífa þau, vaka yfir þeim o. s. frv., en fyrst og fremst þurfa þær að finna sameiginlegan áhuga og umhýggju föðurins fyrir þessari litlu veru, sem þau eiga bæði. Áhyggjur hennar og strit verða á þann hátt miklu léttari og gleðin yfir öllum smáum og stórum framförum barnsins verða a. m. k. tvöfalt stærri þegar tvær manneskjur finna liana sameiginlega. 32 MELKORKA

x

Melkorka

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.