Valsblaðið - 01.05.2006, Side 21

Valsblaðið - 01.05.2006, Side 21
Eftir Guðna Olgeirsson / sœluvímu með íslandsmeistarabikarinn 2006. Margrét Lára, Elísabet Gunnarsdóttir þjálfari og Katrín Jónsdóttir fyrirliði. ég á milli 10-14 einstaklingsbikara frá þessum mótum. Valur var okkar helsti keppinautur flest mótin ásamt Breiða- bliki og voru þessar rimmur allsvakaleg- ar oft á tíðum. Pæjumótið í Eyjum hefur mikla þýðingu fyrir bæinn og allir leggja sitt af mörkum til að gera þau sem flott- ust og eiga Eyjamenn mikið hrós skil- ið fyrir dugnað á sviði íþróttamála á íslandi. Fyrsta árið sem 6. flokkur spil- aði á Pæjumóti lék ég með 5. flokki, en var einnig gjaldgeng í 6. flokki og lék líka með þeim. Það er afar eftirminni- legt þegar við í 6. flokki vorum að leika við Aftureldingu en dómarinn stoppaði skyndilega leikinn því foreidrar Aftureld- ingarstúlkna kröfðust þess að fá að sjá fæðingarvottorð mitt því þeir trúðu ekki að ég væri gjaldgeng í 6. flokki. Þetta var dálítið sérstakt atvik sem ég mun aldrei gleyma," segir Margrét sposk. Hágrátið eftir leik við Val í 5. flokki Margrét segir að það hafi alltaf verið gaman að leika við Valsstelpumar í yngri flokkunum, rimmurnar hafi verið miklar, en hafi alltaf verið erfiðara þegar hún hafi verið á yngra árinu, þar sem eldra árið hjá Val hafi verið gríð- arsterkt, t.d. með Dóm Stefánsdóttur og Dóru Maríu Lárusdóttur í liðinu. „Ég man eftir einu eftirminnilegu atviki sem var ekki skemmtilegt á þeim tíma. Við höfðum nær alltaf unnið þær en þetta var keppni um það hvaða lið kæmist í úrslit á íslandsmótinu. Við vorum með jafn mörg stig, en Valur með betra markahlut- fall og því þurftum við að vinna leikinn sem endaði með jafntefli og man ég að við stelpumar í Tý grétum í um tvo tíma í brekkunni að Hlíðarenda en þetta var mjög sárt fyrir okkur. Ég veit að margir Valsarar muna eftir þessu atviki því þetta þótti mjög sérstakt af svona ungum stelp- un að gráta svona svakalega eftir leik. En svona vorum við stelpumar í Tý, við vildum vinna og ekkert annað,“ segir Margrét ákveðin. Bikarmeistaratitill 2004 stærsta stundin með IDV „Við stelpurnar í ÍBV vomm mjög sigur- sælar í yngri flokkunum. Við vomm einnig mjög sprækar í handboltanum og urðum við þar íslandsmeistarar. Ég held þó að íslands- meistaratitilinn í 3. flokki í fótboltanum standi upp úr þar sem við vomm fáar eftir úr meistaraliði yngri flokkanna. Þar unnum við titilinn á viljanum, en ekki sem besta liðið. Mínar bestu stundir með meist- araflokki ÍBV em án efa þegar við urðum bikarmeistar 2004 en það var fyrsti titill ÍBV í meistaraflokki," segir Margrét, stolt Eyjastúlka. lilliðs viðVal 2004 Ein af ástæðum þess að Margrét gekk til liðs við Val var að hún ákvað að fara í skóla í Reykjavík. Einnig segist hún hafa kunnað rosalega vel við Betu (Elísabetu Gunnarsdóttur þjálfara meistaraflokks Vals) en hún þjálfaði ÍBV árið 2002. „Þar gerði hún ótrúlega mikið fyrir mig og mig langaði að halda áfram að vinna með henni. Hjá ÍBV settum við okkur markmið saman sem við náðum aldrei að klára. Því vildi ég fara aftur til hennar og klára það sem við stefndum alltaf að. Síðan þekkti ég Valsstelpumar úr lands- liðinu og kunni rosalega vel við þær, þannig að það var aldrei spuming um annað en að fara í Val,“ segir Margrét ákveðið. Árin tvö hjá Val „Tímabilin hafa verið mjög ólík. í fyrra unnum við ekki neitt nema silfur en stóð- um okkur þrátt fyrir það frábærlega í Evrópukeppninni sem er án efa eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert á ferl- inum. A síðasta tímabili unnum við allt alls staðar. Bæði árin vom mér mjög lærdómsrík og ég hef notið þeirra í botn enda ekki hægt annað með svona frábær- um hópi leikmanna, þjálfara og stjóm. Mér hefur alltaf liðið mjög vel í rauða búningnum,“ segir Margrét án þess að hika. Mikill metnaöur nauðsynlegur til aö ná árangri „Ég hef alltaf haft mikinn metnað, æft rosalega vel og lagt mig fram. Ég horfi mikið á fótbolta og tel það vera mik- ilvægt til að ná árangri því þar sér maður hvemig þeir bestu framkvæma hlut- ina. Ég veit hvað ég vil og hvert ég vil stefna. Ég hef alltaf hugsað um það hvað ég borða og reyni að stilla allri óhollustu í hóf. Ég reyni að sofa vel, sérstaklega fyrir leiki. Ég á frábæra fjölskyldu og vini sem hafa hjálpað mér mikið ásamt góðum þjálfurum. Ef maður vill eitthvað nógu mikið þá getur maður það,“ segir Margrét. Valsblaðið 2006 21

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.