Valsblaðið - 01.05.2006, Blaðsíða 36
Allir fengu þeirfeðgar viðurkenningu félagsins á
95 ára afmœlinu 11. maí 2006.
Marka þarf afreksstefnu félagsins
Hvar vilja feðgarnir sjá Val eftir tíu ár?
Þeir vilja allir sjá Val á toppnum í öllum
íþróttargreinum félagsins og Valur eigi
að marka afrekstefnu þar sem markmið-
ið sé að ala upp afreksfólk í öllum bolta-
greinunum. Börkur vill sjá fleiri iðkendur
og afrekstefnu innan Vals. Allir eru þeir
sammála um að það verði að efla yngri-
flokkastarf félagsins.
Heitip stuðningsmenn Manchester
Unlted
En hvaða félag styðja þeir í enska bolt-
anum? Allir eru þeir miklir aðdáendur
Manchester United og reyna þeir feðgar
að fara sem oftast til Englands að fylgjast
með liði sínu, að minnsta kosti einu sinni
á ári. „Valur og Manchester United eru
okkar félög, þar liggja hjartaræturnar
segja þeir einum rómi.
Makarnip sýna áhugamálinu
skilning
Eru konur ykkar samtaka í þessu
með ykkur? Þeir segja allir að
konumar standi með þeim í
þessu og sýni þessu áhugamáli
mikinn skilning þó svo að þær
hafi ekkert sérstakan áhuga á
fótbolta en í seinni tíð séu þær
farnar að fylgjast betur með
og segir Börkur að konan hans
sé farin að koma reglulega á
leiki Vals í Landsbakadeildinni.
Edvard segir að stundum komi
það fyrir að konur þeirra séu þreyttar á
umræðunni um Val og spyrji hvort ekki
sé hægt að tala um eitthvað annað en Val.
Og allir em þeir sammála því að með
nýrri aðstöðu verði hægt að fjölskyldu-
væða íþróttirnar betur og eiginkonur og
börn geti komið saman að Hlíðarenda og
átt þar góðan dag.
Það var undirrituðum sönn ánægja að
spjalla við þá feðga og hefðum við
getað spjallað saman fram eftir nóttu um
áhugamál okkar en að lokum þakkaði ég
þeim fyrir. Þeir feðgar vildu koma bestu
kveðjum til Valsmanna og óska þeim
gleðilegra jóla og farsæls komandi Vals-
árs.
Frjalsi fjarfestingabankinn
aðal styrkiaraðili Vals
Neðri röð frá vinstri: Ingólfur Friðjónsson lögfrœðingur
Frjálsa, Kristinn Bjarnason framkvœmdastjóri Frjálsa
fjárfestingabankans, Grímur Sœmundsen formaður Vals
og Hörður Gunnarsson varaformaður Vals. Efri röð
frá vinstri: Meistaraflokksleikmenn Vals í knattspyrnu,
Pálmi Rafn Haraldsson, Málfríður Erna Sigurðardóttir,
Ásta Árnadóttir og Atli Sveinn Þórarinsson.
Frjálsi fjárfestingabankinn og Knatt-
spyrnufélagið Valur undirrituðu árið 2006
samning um að Frjálsi fjárfestingabank-
inn verði aðal styrktaraðili félagsins til
næstu fimm ára. Mun vörumerki Frjálsa
fjárfestingabankans prýða keppnistreyjur
allra keppnisflokka Vals í knattspymu,
handknattleik og körfuknattleik bæði
meistaraflokka og yngri flokka karla
og kvenna. Styrktarsamningurinn er að
verðmæti rúmlega 50 milljónir króna og
gerir Val kleift að halda úti enn öflugra
FRJÁLSI
FJÁRFESTINGARBANKINN
starfi í harðri baráttu um titla á
komandi leiktímabilum í meist-
aradeildum karla og kvenna.
Jafnframt verður lögð enn rík-
ari áhersla á að styrkja og efla
uppbyggingarstarf yngri flokka
félagsins.
Kristinn Bjarnason fram-
kvæmdastjóri Frjálsa fjárfest-
ingabankans sagði m.a. við
undirritun samningsins: „Það
er mikilvægt fyrir Frjálsa
fjárfestingabankann að tengjast
svo öflugu íþrótta- og uppeld-
isstarfi sem Valur starfrækir. Við
erum stolt af því að tengja nafn
okkar fyrirtækis við þetta rót-
gróna félag. Frjálsi fjárfestingabankinn
væntir mikils af þessu samstarfi."
Grímur Sæmundsen formaður Vals
sagði við þetta tækifæri: „Fyrir Val er
þetta ómetanlegur stuðningur. Við fáum
nauðsynlegt fjármagn og ekki síður mik-
ilvægan stuðning sem bein tenging við
öflugt fyrirtæki veitir íþróttafélagi. Við
munum sjá til þess að samningurinn nýt-
ist báðum aðilum vel. Hjá Val eru mikl-
ir uppbyggingartímar framundan bæði í
mannvirkjagerð og félagsstarfi."
Meðfylgjandi mynd var tekin við und-
irritun samningsins.
36
Valsblaðið 2006