Valsblaðið - 01.05.2006, Blaðsíða 65
Samningar undirritaðir við ýmsa leikmenn. Efri röð frá vinstri: Soffía
Rut Gísladóttir, Arnór Gunnarsson, Ernir Hrafn Arnarson, Gunnar
Harðarson, Pavla Skavronkova, Gréta Þórsdóttir Björnsson. Neðri
röð: Stefán Karlsson formaður Itandknattleiksdeildar, Markús Máni
Michaelsson, Olafur Haukur Gíslason.
Ekki var minna um að vera í leik-
mannamálum meistaraflokks karla.
Mohamadi Loutoufi hélt heim til Frakk-
lands en þessi skemmtilegi leikmaður
setti mikinn svip á deildina í fyrra, auk
þess að vera frábær félagi. Tveir örvhent-
ir leikmenn gengu til liðs við okkur, þeir
Ernir Hrafn Arnarson og Amór Gunnars-
son. Emir kom
frá Aftureldingu,
en hann er meðal
efnilegri leikmanna
landsins. Það sama
er hægt að segja
um Amór sem kom
frá Þór á Akureyri.
Gunnar Harðarson
línumaður kom frá
Fram, en hann er
eins og hinir tveir
mjög efnilegur og
öflugur leikmaður,
þrátt fyrir að vera
rétthentur. Markús
Máni Michaels-
son kom heim til
Islands frá Dússel-
dorf í Þýskalandi
og þarf ekkert að
fara mörgum orðum um hversu sterkur
leikmaður er þar á ferð, uppalinn Vals-
ari í landsliðsklassa. Hið sama má einnig
segja um Ólaf Hauk Gíslason markvörð,
sem er kominn heim á Hlíðarenda eftir
að hafa alið meistaraflokksferil sinn í ÍR,
auk þess að spila síðasta tímabil í Sviss.
Bjartir tímar tram undan
Leikmannahópamir eru báðir mjög sterk-
ir og til alls líklegir á yfirstandandi tíma-
bili. Þegar þetta er skrifað eru bæði lið í
bullandi toppbaráttu og engin ástæða til
annars en horfa björtum augum til fram-
tíðar. Yngri flokka starfið hefur farið
vel af stað og iðkendafjöldi haldist þrátt
fyrir aðstöðuleysið. Við höfum hæfustu
þjálfara landsins innanborðs, sjaldan eða
aldrei hafa fleiri frábærir þjálfarar verið
samankomnir í einu og sama félaginu.
Ný aðstaða er ekki langt frá því að verða
að veruleika og ljóst að um byltingu
verður að ræða fyrir handknattleiksdeild,
sem og aðrar deildir félagsins. Þó að við
séum ekki á Hlíðarenda fer ágætlega um
okkur í Höllinni og hvetjum við fólk til
að fjölmenna á þá leiki sem eftir eru af
tímabilinu, enda em þetta frábær lið sem
eiga stuðning okkar skilinn. Einnig hvetj-
um við foreldra til að taka virkan þátt í
starfinu með börnum sínum og koma
með þeim á leiki hjá leikmönnunum sem
eru fyrirmyndir þeirra.
F.h. handknattleiksdeildar,
Stefán Karlsson, formaður