Valsblaðið - 01.05.2006, Blaðsíða 29
Skýpsla venna meistaraflokks karla
tímabilið 2006
Leikmannamál
Eftir keppnistímabilið 2005 yfirgáfu eft-
irtaldir leikmenn liðið: Kristinn Ingi
Lárusson og Stefán Helgi Jónsson lögðu
skóna á hilluna, Sigurður Sæberg fór í
HK, Grétar Sigfinnur Sigurðsson fór til
Víkings, Rafn Vilbergsson fór til Njarð-
víkur, Einar Njálsson fór í Fjölni, Einar
Oli Þorvarðarson fór í Aftureldingu,
Bjami Olafur Eiríksson var seldur til
Silkiborgar, Sigþór Júlíusson var lánaður
til Völsungs og síðar seldur til KR, Torfi
Hilmarsson var lánaður til Aftureldingar,
Þórður Hreiðarsson fór í Þrótt, Baldvin
Hallgrímsson fór í Þrótt, Jóhann Hreið-
arsson í Þrótt og í sumar var Ari Freyr
Skúlason seldur til Hácken og Garðar
Gunnlaugsson seldur tii Norrköping og
Jakob Spansberg var seldur til Leiknis.
Eftirtaldir leikmenn gengu til liðs við
Val: Jakob Spansberg kom frá Leikni,
Andri Valur ívarsson frá Völsungi,
Valur Fannar Gíslason frá Fylki, Arni
Ingi Pjétursson kom frá Bandaríkjunum,
Barry Smith frá Dundee í Skotlandi,
Kristinn Hafliðason frá Þrótti, Pálmi
Rafn Pálmason frá KA, Þorvaldur Makan
frá Fram, Öm Kató Hauksson frá KA og
í sumar var Garðar Jóhannsson keyptur
til Vals frá KR.
Þjálfarateymi
Willum Þór Þórsson var sem fyrr aðal-
þjálfari liðsins og nú á dögunum fram-
lengdi hann samningi sínum við Val til
a.m.k næstu þriggja ára. Þór Hinriksson
Stuðarar voru kosnir bestu stuðningsmenn í Landsbankadeild kvenna ogfœrðu þeir
yngri flokkum kvenna verðlaunaféð, 200 þús. kr.
Stelpumar spiluðu 14 leiki í Landsbanka-
deildinni og töpuðu einungis einum leik,
gegn Breiðabliki á útivelli og enduðu
mótið þar með 39 stig. Liðið skoraði í
þessum leikjum 90 mörk og fékk einung-
is á sig átta mörk. Liðið var því krýndur
íslandsmeistari eftir síðustu umferðina,
en það er þó vert að geta þess að lið FH,
sem var andstæðingur liðsins í þeim leik,
mætti ekki til leiks eins og flestir muna
sjálfsagt eftir.
Bikarkeppnin hófst með leik gegn
KR í Frostaskjólinu í átta liða úrslitum
og vannst sá leikur 0-3. f undanúrslitum
léku stelpumar gegn Stjömunni og höfðu
sigur, 2-1. Urslitaleikurinn var gegn
Breiðabliki og eftir að jafnt hafði verið
eftir venjulegan leiktíma, 2-2, og aftur
eftir framlengingu, 3-3, þurfti að grípa til
vítaspyrnukeppni. Þar höfðu Valsstúlkur
betur og hömpuðu því bikarmeistaratitl-
inum sumarið 2006.
Hópurinn uppskar ríkulega á lokahófi
KSÍ en í liði ársins vom valdar þær
Guðný Björk Óðins-
dóttir, Asta Arnadótt-
ir, Rakel Logadóttir,
Katrín Jónsdóttir fyr-
irliði og Margrét Lára
Viðarsdóttir. Elísabet
Gunnarsdóttir var valin
þjálfari ársins, Guðný
Björk Óðinsdóttir var
valin efnilegasti leik-
maður deildarinnar
og Asta Amadóttir sá
prúðasti. Þá er óupp-
talinn þáttur Margrétar
Lám Viðarsdóttur, sem
var valin besti leikmað-
ur Landsbankadeild-
arinnar auk þess sem hún fékk gullskó-
inn fyrir að hafa skorað flest mörk. Mar-
grét Lára skoraði 34 mörk í 13 leikjum
í Landsbankadeildinni sem er met og
fimm mörk í þremur bikarleikjum, þar af
þrjú í úrslitaleiknum sjálfum. Stuðnings-
menn Vals, Stuðaramir, fengu svo stuðn-
ingsmannaverðlaunin í kvennaflokki.
Nú þegar hefur Margrét Lára
Viðarsdóttir tekið tilboði um að leika
knattspymu í efstu deild í Þýskalandi
og ljóst að hún mun ekki leika með
Valsstelpum á næsta tímabili.
2. flokkur kvenna
Theodór Sveinjónsson annaðist þjálfun
2. flokks kvenna síðasta tímabil og verð-
ur áfram með hópinn á næsta tímabili.
Flokkurinn var fremur fámennur og fékk
oftar en ekki liðsstyrk frá stelpum í 3.
flokki. Flokkurinn lék í
A-deild Islandsmótsins og
var árangur liðsins ágæt-
ur, lenti í 3.-5. sæti deild-
arinnar. Nokkrar stúlkur úr
hópnum fóm með 3. flokki
í vel heppnaða keppnisferð
til Danmerkur. Mikið brott-
fall hefur verið úr 2. flokki
á undanfömum ámm en í
hópnum núna em marg-
ar efnilegar stúlkur sem
eiga framtíðina fyrir sér. I
haust vom fimm stúlkur
úr hópnum valdar í U17
landsliðshópinn. Einnig
hafa fimm stúlkur úr Val
verið valdar í U19 lands-
liðshópinn og em nokkr-
ar þeirra fastaleikmenn í
meistaraflokki.
Valsblaðið 2006