Valsblaðið - 01.05.2006, Blaðsíða 84

Valsblaðið - 01.05.2006, Blaðsíða 84
Félagsstarf Blómlegt starí hjá vaiskórnum Það voru fagrir tónar sem bárust frá Frið- rikskapellu þegar fulltrúi Valsblaðsins tók hús á Valskórnum nú í nóvember. Ekk- ert minna en Halelújakórinn úr Messíasi eftir Hándel. Valskórinn var að æfa fyrir árlegt aðventukvöld í Friðrikskapellu, sem ávallt er hátíðleg stund, þar sem andi stofnandans Friðriks Friðrikssonar svífur yfir. Starfsemi Valskórsins hefur verið í miklum blóma síðastliðið ár. Virkir með- limir kórsins eru um tuttugu og sjö og kórstjóri er Bára Grímsdóttir tónskáld. Kórnum hefur haldist vel á stjórnend- um því Bára er einungis sá þriðji frá stofnun kórsins frá 1992. Það var Gylfi Gunnarsson tónlistarmaður og skólastjóri sem leiddi kórinn fyrstu árin en síðan tók Guðjón Steinar Þorláksson við og stjóm- aði kómum til haustsins 2004. Guðjón vann það þarfa verk að útsetja Valslagið fyrir blandaðan kór enda er lagið sungið á hverjum tónleikum Valskórsins. Kórinn æfir að jafnað í einu sinni í viku en er nær dregur tónleikum er æfingum fjölgað því metnaður kórfélaga er mikill. Kórinn hélt sína árlegu vor- tónleika í lok maí en strax eftir sumarfrí var farið að huga að næsta verkefni sem vom sameiginlegir tónleikar Valskórsins og Skálholtskórsins. í lok október var svo skundað austur í Biskupstungur og haldnir tónleikar í Aratungu sem tókust vel. Fjölmargir áheyrendur fögnuðu söng kóranna. Þótti mörgum sem kóramir hefðu mátt syngja fleiri lög. Valskórinn kom svo fyrr á árinu fram í nýrri kirkju að Sólheimum í Grímsnesi að tilstuðl- an Péturs Sveinbjamarsonar fyrrverandi formanns félagsins og söng svo á hátíð- arsamkomu 11. maí á 95 ára afmæli félagsins. Létt var yfir kórfélögum er Valsblaðið heimsótti kórinn á æfingu því þar er maður manns gaman og sungið af lífi og sál. Kórinn er því kærkominn vettvangur fyrir alla söngglaða Valsmenn sérstak- lega þá sem ekki eru lengur á sínu létt- asta skeiði í framvarðasveit keppnisliða félagsins. Margir félagar kórsins tengjast Val með einhverjum hætti. Þeim sem fyllt hafa raðir Valsmanna frá æsku finnst afskaplega skemmtilegt að eiga erindi að Hlíðarenda að minnsta kosti einu sinni í viku. Það minnir svolítið á gömlu dagana þegar Hlíðarendi var miðpunktur heims- ins. Ekki er vitað til þess að önnur íþrótta- félög skarti blönduðum kór innan sinna vébanda svo segja má að starfsemi Valskórsins sé á ýmsan hátt merkileg. Það er því óskandi að Valskórinn nái að dafna og eflast enn frekar á næstu árum og Valsmenn flykkist á tónleika kórsins. Áfram Valur, fleiri mörk! Jón Guðmundsson Vilskórinn c/iir hinlcikci i Aruniiiu,u íokuíbcr 2006. AJiari i <"><): Slc/iín llaUdórsson. Sif>nrdur (iiiðjóiisson, llalhlór lunarssoii, (1 uðni Uarðarson, Jón (liiðiiiiiiulsson, (liiðiiiuiidiir !■ rínianiissoii, Þórarinn Valf>cirsson, Svcinn Valf>cirsson of> Úl/iir Móssott. b'remri röð: Þorbjörf> Sóilcv liif>adóilir, Jóliaima (Iiiiiii/iói sdóniir, (luð- bjöif> li. Pclcrscn, IIniJiiliildur liif>ól/sdóiiir, liif>v(ddiir Jónsdóinir, (luðlaiif; Skiíludóilir, Anna Sif>ríður .lóliaiins dóttir, Þuríðiir Ollcscu, Karitas Ihdldórsdóllir, l.ilja JómasdóUir, Hclf>a Skiiladóiiir, Hctf>a llirkisdóttir. Idsu H. Asiiiiindsdóltir, Hjiirk Slcin^rinisdóllir ofl Hóru (Irímsdóttir sljóriunuli. 84 Valsblaðið 2006
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.