Valsblaðið - 01.05.2006, Blaðsíða 96
Minning og kveðjur
t
Jóhann Eyjólfsson
fæddur 19. maí 1919 - dáinn 3. janúar 2999
Kveðja frá Knattspyrnufélaginu Val
Við Valsmenn sjáum á bak góðum og
traustum félagsmanni og vini til fjölda
ára, þegar við kveðjum Jóhann Eyjólfs-
son í dag í hinsta sinn. Jóhann hafði alla
tíð mikinn áhuga á íþróttum og byrjaði
ungur að iðka knattspymu og fimleika.
Hann varð fljótlega að gera upp við sig,
hvora greinina hann ætti að velja og varð
knattspyman fyrir valinu.
Hann gekk ungur í Val og lék með yngri
flokkum félagsins og í meistaraflokki í
mörg ár. Hann varð meðal annars fimm
sinnum íslandsmeistari með Val. Jóhann
var kantmaður, eins og það var kallað í
þá daga. Hann var fljótur og teknískur
knattspyrnumaður, sem lék mótherja sína
oft grátt.
Jóhann varð formaður Knattspymu-
félagsins Vals á þeim tímamótum, þegar
félagið varð 40 ára árið 1951, og hafði
hann forgöngu um mikil hátíðarhöld
í því sambandi, meðal annars með
kappleikjum og veglegu afmælishófi sem
haldið var í gamla Sjálfstæðishúsinu við
Austurvöll.
Enda þótt Jóhann gerðist unnandi
golfíþróttarinnar eftir störf sín sem
formaður Vals og yrði einn af fremstu
kylfingum landsins um árabil, var hann
ávallt sannur Valsmaður og fylgdist vel
með gengi félagsins. Hann átti sæti í
fulltrúaráði Vals til æviloka.
Um nokkurra ára skeið hafa eldri
Valsmenn komið saman einu sinni í
mánuði í kaffi, þar sem rætt hefur verið
um gamla og nýja tíma í Val. Jóhann var
einn af þessum köppum, þótt hann ætti
erfitt um gang vegna veikinda hin síðari
ár. Jóhann var léttur í lund, hnyttinn í
svörum, glaðvær í vinahópi og ávallt var
stutt í brosið.
Við Valsmenn þökkum Jóhanni
samfylgdina og farsælt starf fyrir
Knattspymufélagið Val í gegnum árin
og vottum eftirlifandi eiginkonu hans
og fjölskyldu innilega samúð allra
Valsmanna.
Grímur Sœmundsen, formaður
Knattspyrnufélagsins Vals
t
Marólína Arnheiður Magnúsdóttir
fædd 24. júlí 1942 - dáin 9. núvember 2999
Elsku Malla, þú ert farin frá okkur allt-
of snemma. Eftir sitjum við vinir þínir úr
Val og söknum þín.
Það em nú orðin um 50 ár síðan við
hófum handboltaæfingar hjá Val. Þær
voru margar góðu stundimar sem við
áttum, annaðhvort við handboltaæfingar
eða skíðaferðir í skíðaskála Vals. Við sem
eftir sitjum minnumst keppnisferðanna
sem við fórum í t.d. til Vestmannaeyja
1958, Færeyja 1959 og Noregs, þetta
vom skemmtilegir tímar sem við minn-
umst alltaf þegar við hittumst. Upp úr
þessu myndaðist ákveðinn kjami sem
hefur hist árlega frá því að við hættum
íþróttaiðkun. 30. apríl ár hvert höfum við
komið saman og rifjað upp gömlu tímana
og skrafað um allt og ekkert. Það hefur
verið erfitt að fylgjast með veikindum
þínum en baráttukraftur þinn og þraut-
seigja þín verður okkur sem eftir sitjum
ógleymanleg.
Far þú í friði elsku Malla, einn daginn
munum við hittast á ný og taka upp þráð-
inn frá því sem frá var horfið.
Vinkonurnar úr meistaraflokki Vals
■ | óskar Sigurði Marelssyni til
hamingju með 75 ára afmælið þann 5. nóvember sl.