Valsblaðið - 01.05.2006, Blaðsíða 90
Framtíðarfólk
■■
rnurnar vi
verju arinu sem nour
skærari
Rakel Logadóttir leiknr knattspyrnu meö meistaraflokki kvenna
Fæðingardagur og ár? 22. mars 1981.
Nám? íþróttakennaraháskólinn á Laug-
arvatni.
Kærasti? Enginn.
Hvað ætlar þú að verða? íþróttafræð-
ingur og spekingur mikill um fótbolta.
Frægur Valsari í fjölskyldunni? ÉG.
Hvernig hafa foreldrar þínir stutt þig
í fótboltanum? Andlega og fjárhagslega.
Svo hafa þau verið mjög örlát á að lána
mér bflinn til að fara á æfingar.
Hver er besti íþróttamaðurinn í fjöl-
skyldunni? ÉG.
Hvað gætir þú aldrei hugsað þér að
verða? Svona skrifstofublók.
Stjörnuspá þín fyrir næsta ár? Stjörn-
urnar verða skærari með hverju árinu
sem líður.
Af hverju fótbolti? Skemmtileg íþrótt
sem gaman er að pæla í.
Af hverju Valur? Af því að ég vildi
ekki fara í KR þegar ég var yngri og átti
heima í Vesturbænum.
Eftirminnilegast úr boltanum? Allt
árið 2006...klappa fyrir því!!...strappon
sprettirnir og sérstaklega þarna æfingin á
Leiknisvellinum.
Eftirminnilegt úr þjálfaraferlinum hjá
þér? Allar æfingar hjá 8. flokki eru eft-
irminnilegar.
Hvernig gekk á síðasta tímabili? FRÁ-
BÆRLEGA.
Ein setning eftir tímabilið? „Girls, put
the rubber on“, (sem sagt teygjurnar).
Besti stuðningsmaðurinn? STUÐ-
ARARNIR og hún SUNNA klárlega.
Takk fyrir.
Koma titlar í hús næsta sumar? Það
kemur í ljós...
Möguleikar kvennalandstiðsins að
komast í lokakeppni stórmóts? Meiri
en fólk gerir sér grein fyrir.
Skemmtilegustu mistök? Að spila
handbolta einn vetur, þá var hann Oskar
Bjarni nokkur að þjálfa og ég held að ég
hafi gefið Oskari aðra vídd á þessa íþrótt.
Tókst til dæmis 'að þróa nýjan skotstíl í
anda körfuboltans og svo tókst mér að
Iáta eina stelpu flækjast í hárinu á mér
svo að það þurfti að stöðva leikinn.
Mesta prakkarastrik? Þegar ég,
Laufey Olafsdóttir og Erna
Erlends. fórum og settum
klósettpappír og svona
spólu filmu yfir allan bfll-
inn hjá þjálfaranum okkar
sem þá var Oli. Hann
varð víst mjög seinn í
vinnuna daginn eftir og
ekki beinlíns glaður.
Fyndnasta atvik? Þegar
Rut fékk krampa í Evr-
ópukeppninni og gat ekki
gengið. Þá var henni sagt að
fara af leikvelli og skreið
hún þá með miklum erf-
iðismunum af vellinum
en þá kom hinn
dómarinn og sagði
henni að hún
mætti ekki fara
af vellinum og þá skreið hún aftur inn á
völlinn.
Stærsta stundin? Að vinna bikarinn í ár
og vera í liði ársins.
Hvað hlægir þig í sturtu? Brúskurinn
undir höndunum á Hallberu.
Athyglisverðasti leikmaður í meist-
araflokki? Þetta er klárlega á milli Kötu,
Hallberu og Guðnýjar. Held, eftir miklar
vangaveltur, að Guðný fái þennan titil og
er hún vel að honum komin.
Hver á Ijótasta bílinn? Guðný...held ég,
annars eigum við allar flotta bíla.
Hvað týsir þínum húmor best? Ég hlæ
alltaf mest af sjálfri mér.
Fleygustu orð? „If you can't beat it, eat
it.“
Mottó? Að vera bara ég sjálf.
Fyrirmynd í boltanum? Ætli það sé
ekki bara hún Margrét Lára, þótt hún sé
mikið yngri en ég.
Leyndasti draumur? Að spila úti með
erlendu liði.
Við hvaða aðstæður líður þér best?
Þegar ég skora.
Hvaða setningu notarðu oftast? Hey
Díva.
Skemmtilegustu gatlarnir? Get verið
mjög fljótfær, stundum hugsa ég ekki
áður en ég tala.
^^30 er það fallegasta sem
hefur verið sagt við þig?
Flottar beljur (er þá að vísa
til kálfanna minna sem
■ þykja frekar massaðir og
* stórir).
Fullkomið laugardags-
kvöld? Tjill í góðra
vina hópi.
Hvaða flík þykir þér
rvænst um? PUMA
peysuna mína.
^ Besti fótbolta-
maður
sög-
unnar á íslandi? Margrét Lára Viðars-
dóttir og Margrét Olafsdóttir í kvenna-
boltanum og Eiður Smári í karlabolt-
anum.
Besti fótboltamaður heims? Ronald-
inho.
Besti söngvari? Að mínu mati er það
Jackson.
Besta hljómsveit? The house band í
Rockstar.
Besta bíómynd? V for Vendetta.
Besta lag? Irish.
Uppáhaldsvefsíðan? www.valurwoman.
blogspot.com
Uppáhaldsfélag í enska boltanum?
Manchester United.
Nokkur orð um núverandi þjálfara?
BESTI ÞJÁLFARI í HEIMI.
Ef þú værir alvaldur í Val hvað mynd-
ir þú gera? Láta þrífa Valsheimilið hátt
og lágt og setja meiri peninga í yngri
flokkana.
Nokkur orð um nýju aðstöðuna á Hiíð-
arenda? Frábær. Þetta er klárlega með
betri aðstæðum Iandsins og það verður
gaman að vera bæði þjálfari og leikmað-
ur hérna þegar þetta er tilbúið.
90
Valsblaðið 2006