Valsblaðið - 01.05.2006, Blaðsíða 81
Ferðasaga
Sœvaldur Bjarnason aðstoðarþjálfari
meistaraflokks.
þá tók við annar leikur, nú við Amager.
Við vorum greinilega ekki sáttir við tapið
daginn áður og það sást vel. Allt annað
lið mætti til leiks og áttu heimamenn
í Amager í stökustu vandræðum með
okkur lengi vel. Þegar líða tók á leikinn
fórum við samt að finna meira fyrir hæð-
armuninum og líkamlegum
yfirburðum andstæðing-
anna og náðu þeir að knýja
fram sigur að lokum. Engu
að síður góð frammistaða
hjá okkar mönnum og
greinilegt að menn höfðu
betra hugarfar. Leikurinn
var búinn frekar seint þann-
ig að menn fóru beint heim.
Daginn eftir var svo æfing
og leikur eins og hina dag-
ana. Við spiluðum við 1.
deildarliðið Falcon og sigr-
uðum þá eftir mikla bar-
áttu. Það varð síðasti leikurinn okkar og
morguninn eftir var síðasta æfingin. Þá
voru farin að sjást þreytumerki á mönn-
um og undir lok þessara þriggja tíma
æfingar munaði litlu að færi að sjóða upp
úr hjá nokkrum okkar. Eftir hádegið var
okkur gefið frí og fóru sumir í Tívolí,
aðrir að versla og nokkrir okkar böðuðu
sig í sólinni í Kongens Have sem margir
þekkja einnig sem Rosenborgargarðinn.
Þessi ferð gerði okkur Valsmönnum
mjög gott. Bæði efldi hún liðsandann og
margir tóku mjög miklum framförum.
Við erum með ungt lið og það er klárt
mál að með réttu hugarfari og góðum
æfingum er ekki langt í að Valsmenn
eigi lið í fremstu röð hér á íslandi. Þeir
sem fóru í ferðina voru Eggert og Sæbi
þjálfarar, Sigvaldi sonur Eggerts, Valtýr,
Kolbeinn, Hafsteinn, Magnús, Hjalti,
Haraldur, Páll Fannar, Amór, Kjartan,
Gústaf, Dzemal, Stefán og Steingrímur.
Steingrímur Gauti Ingólfsson,
Leikmaður unglingaflokks
og meistaraflokks
Matsölustaður við öll tækifæri
Kringlukráin er lifandi veitingahús og þar er áhersla lögð á notalegt umhverfi, faglega
þjónustu og góðan mat. Matseðillinn okkar er í senn einstakur og íjölbreyttur.
Á honum eru vandaðir réttir við allra hæfi sem framreiddir eru úr besta fáanlega hráefni
hverju sinni. Girnileg salöt, bökur, pastaréttir, fiskiréttir og safaríkar steikur,
ásamt ekta ítölskum pizzum, hamborgurum, samlokum og fl.
Einnig höfum við upp á að bjóða gott úrval léttvína.
Tilboðsmatseðill fyrir leikhúsgesti
Hópamatseðill • Sér salur fyrir hópa
Fjölbreyttur sérréttamatseðill
Lifandi tónlist föstudags- og laugardagskvöld
með bestu hljómsveitum landsins. www.kringlukrain.is