Valsblaðið - 01.05.2006, Blaðsíða 75
Starfið er margt
Efri röð frá vinstri: Aron Már Ólafsson, Sigurður Pétursson, Knútur Ingólfsson, Júlí-
an Jóhannsson, Friðrik Þórðarson, Hjálmar Hannesson, Sœvaldur Bjarnason. Neðri
röðfrá vinstri: J. Kormákur Arthursson, Jón Ingi Ottósson, Arnar Óli Einarsson,
Benedikt Blöndal og Tómas Páll Svanlaugsson.
Eggert er þjálfari meistara- og ungl-
ingaflokks ásamt því að vera með yfir-
umsjón með drengjaflokknum en margir
leikmenn drengjaflokks verða burð-
arásar í meistaraflokknum næstu árin.
Sævaldur Bjamason verður aðstoð-
arþjálfari Eggerts ásamt því að þjálfa
drengjaflokkinn. Því verður góð tenging
á milli yngri flokka og meistaraflokks.
Með þessu næst heildarsamræming og
markmiðið verður ljóst hjá elstu flokk-
unum. í ár var í fyrsta skipti í íslenskum
körfubolta heilt lið sem fór í skipulagðan
tíma hjá frjálsíþróttaþjálfara. Síðasti hluti
undirbúningstímabilsins var keppnisferð
til Danmerkur í byrjun ágúst.
Það er ljóst að ekki er hægt að hafa
eingöngu unga og óreynda leikmenn og
því hefur liðið fengið góðan liðsstyrk.
Matteo Cavallini kemur frá Italíu og
Zach Ingles kemur frá Bandaríkjunum.
Með þennan liðsstyrk, ásamt þeim leik-
mönnum sem fyrir eru, er liðið líklegt til
að komast í efstu deild.
Ekki hafa orðið miklar breytingar
á liðinu en auk Matteo og Zach hefur
Kjartan Orri Sigurðsson ákveðið að leika
með liðinu í vetur eftir árs frí. Gylfi Már
Geirsson og Matthías Asgeirsson hafa
hætt með liðinu og við óskum þeim góðs
gengis á nýjum stað.
Við hvetjum alla til að styðja liðið við
þetta metnaðarfulla markmið í vetur.
\ íslandsmóti og enduðu í öðru sæti í b-
riðli, auk þess endaði liðið í öðru sæti í
Reykjavíkurmótinu. Liðið samanstendur
af mjög góðum fímmtán manna hópi sem
æfir mjög vel og leggur sig mikið fram.
Sævaldur er áfram með þennan flokk í
vetur.
hægt að una við og hafa drengirnir farið
vaxandi með hverju árinu. Hópurinn var
stór og fengu allir að spreyta sig í leikj-
um og má segja að allir hafi bætt við sig
í reynslubankann.
Bergur er áfram með þennan flokk í
vetur.
Yngni flokkar
Það er óhætt að segja að Valur hafi á að
skipa nokkrum af hæfustu þjálfurum
landsins sem hafa náð góðum árangri
með yngri flokkana. Meira en 100 iðk-
endur eru í yngri flokkunum og er mik-
ill áhugi og kraftur hjá öllum iðkendum.
Bergur Már Emilsson, Birgir Mikaelsson
og Sævaldur Bjarnason þjálfa áfram hjá
okkur í vetur en Agúst Jensson hefur
söðlað um og er nú að þjálfa hjá Fjölni.
Við þökkum Agústi fyrir frábært starf
undanfarin ár í deildinni og vonumst eftir
að fá að njóta krafta hans fljótlega aftur.
Auk þess hefur Signý Hermannsdóttir
tekið sér frí frá þjálfun í vetur og þökk-
um við henni fyrir gott starf á síðasta ári.
Gengi yngri flokka á síðasta tímabili
7. flokkur drengja, fæddir 1993
Þjálfari: Sævaldur Bjamason
Byrjuðu í c-riðli og voru mjög vax-
andi. Unnu tíu leiki og töpuðu þremur
8. flokkur drengja, fæddir 1992
Þjálfari: Sævaldur Bjarnason
Byrjuðu í c-riðli, komust upp í b-riðil en
enduðu í c-riðli. 17 strákar æfðu síðasta
vetur og enduðu í öðru sæti í Reykjavík-
urmótinu. Það em margir leikmenn í
þessum flokki sem gætu náð langt ef þeir
verða duglegir að æfa næstu árin. Birgir
Mikaelsson er þjálfari liðsins í vetur.
10. flokkur drengja, fæddir 1990
Þjálfari: Bergur Már Emilsson
10. flokkur var heldur fáliðaður og voru
margir drengir úr 9. flokki sem spiluðu
upp fyrir sig í þessum flokki. í fyrsta
móti vom drengimir hársbreidd frá því
að tryggja sér sæti í a-riðli. Meiðsli og
forföll urðu til þess að flokkurinn náði
sér ekki á strik eftir áramót.
9. flokkur drengja,
fæddir 1991
Þjálfari: Bergur
Már Emilsson
9. flokkur komst í
fyrsta skipti upp í
a-riðil og stóðu sig
vel í hópi þeirra
bestu. Tveir sig-
urleikir á fyrsta
móti og einn sig-
urleikur á öðru
móti í a-riðli er
árangur sem vel er
Valsblaðið 2006