Valsblaðið - 01.05.2006, Qupperneq 35
Eftíp Gest Val Svansson
bræður undir það. En öllum þeim finnst
staðan vera að batna mikið. „Það þarf að
virkja foreldra mun betur í að taka þátt
í félagsstarfi Vals, þetta leggst á of fáar
hendur og að lokum gefast þeir hreinlega
uppsegir Edvard.
Staða Vals er sterk núna
„En félagið er gríðarlega sterkt og fram-
tíðin björt, það er engin spuming," segir
Skúli.
Edvard finnst eins og gamli tíminn sé
að koma aftur, fólk taki betur þátt í starf-
inu eins og í gamla daga og greinilega
fleira áhugasamt fólk að koma inn í
starfið. Ótthar vildi koma því á framfæri
að félagið.stæði mjög vel, „við erum í
toppbaráttu í handbolta og fótbolta bæði
karla- og kvennamegin og tvöfaldir
meistarar í kvennaknattspyrnu og það er
ekkert annað lið sem stendur betur hér á
landi, það er einungis körfuboltinn sem
hefur verið í lægð, alla vega í meistara-
flokkisegir Ótthar.
Ákveðið að koma Val aftur í fremstu
röð
Þeir feðgar em sammála því að margt
hafi breyst fyrir fjómm árum þegar tekin
var sú ákvörðun að koma Val aftur í
fremstu röð og félagið hafi vaxið mikið.
Sérstaklega telja þeir að knattspyman
hafi styrkst hjá körlunum eftir að Willum
kom til starfa og áhorfendum hafi fjölg-
að vemlega 2005, þá hafi verið meiri en
helmingsfjölgun frá því að Valur var í
efstu deild þar á undan eða árið 2003.
Meistaraflokkar í knattspyrnu
andlit fálagsins
Undirritaður spurði hvort þeir feðgar
væm sammála því að meistaraflokk-
ar félagsins í knattspymu væru andlit
félagsins og fólki meti svolítið hvemig
felagið stendur eftir frammistöðu meist-
araflokka í knattspyrnu.
Þeir tóku allir undir það eins og þegar
meistaraflokkur karla féll í fyrsta skipti
1999 hélt hinn almenni Valsmaður að
félagið væri á niðurleið en svo hafi nú
aldeilis ekki verið.
„Meistaraflokkur karla tekur inn 85%
af öllum tekjum deildarinnar þannig að
það er ekki nema von að fólk líti á hann
sem andlit félagsins," segir Börkur og
bætir við: „þó að handboltinn hjá Val
hafi staðið sig gríðarlega vel undanfarin
ár og oft haldið heiðri félagsins á lofti.
Við megum alls ekki lenda í sömu stöðu
og Víkingar. Þar eru engir meistaraflokk-
ar í handboltanum og félagið á mikilli
niðurleið en meistaraflokkur Víkings í
knattspymu heldur lífi í félaginu. Það
virðist vera mikill stöðugleiki hjá okkur í
þessum tveimur vinsælu íþróttagreinum,“
vill Börkur að komi fram.
Miklar kröfur um árangur á
Hlíöarenda í gegnum tíðma
Næst sagðist undirritaður hafa lesið í
Valsblaði frá 1979 að boðað hefði verið
til neyðarfundar að Hlíðarenda vegna
þess að ekki náðist að landa titli það
sumarið, engu að síður hefði Valur lent í
öðm sæti í deild og bikar tapað úrslitaleik
í bikarnum 1-0 gegn Fram. Þetta lýsir
metnaðinum á þessum tíma. Hvað finnst
ykkur um þann metnað sem var á þessum
tíma og hvar stöndum við núna? Er stefnt
að titli á hverju ári eða er þetta liðin tíð?
Edvard eldri svaraði strax og sagði hann
að honum fyndist þessi tími vera kom-
inn aftur hjá Val. „Krafan nú á dögum
er titill, engin spurning. Og nú er markið
ávallt sett hátt og þar á félagið að vera.
Þannig var þetta í gamla daga og núna
er sami metnaðurinn kominn aftur eftir
mörg ansi mögur ár,“ segir Edvard. Og
Ótthar segir að markmið undanfarinna
tveggja ára hafi verið að koma félaginu
á þann stað sem það eigi að vera, þ.e. á
toppinn og hætta þessu hoppi á milli
deilda eins var á árunum 1999-2004.
Skúli segir að hann hafi verið farinn að
heyra það í stúkunni að menn væru bara
sáttir við að vera í fyrstu deildinni, „við
værum þó alltaf í toppbaráttu þar. Þetta
segir manni hvers konar viðhorf hinn
almenni Valsmaður var farinn að hafa,“
segir Skúli. Börkur vildi koma því á
framfæri að honum fyndist að það ætti
að vera krafa allra Valsmanna að stefna
á sigur í öllum mótum sem félagið tæki
þátt í. „Svona fornfrægt stórt félag með
mikla hefð á að stefna á sigur í öllum
mótum bæði karla- og kvennamegin,“
segir Börkur.
Valur frumkvöðlafélag
Allir eru þeir feðgar sammála um að
Valur hafi verið frumkvöðull á mörgum
sviðum knattspymunnar, meðal ann-
ars verið fyrsta liðið sem spilaði heima-
leiki á sínu svæði, fyrsta liðið sem gaf út
leikskrá og Valur sé það félag sem hefur
markað spor og mtt leiðina fyrir önnur
félög.
Áhugamenn um handbolta
Næst voru þeir feðgar spurðir hvort þeir
fylgdust með öðrum íþróttagreinum
innan Vals fyrir utan knattspyrnu. Allir
segjast þeir fylgjast með handboltanum,
bæði vegna áhuga og svo séu synir Bark-
ar og Ótthars að æfa og spila handbolta
með yngri flokkum félagsins. Og Skúli
vildi koma því á framfæri að það sé ekk-
ert grín að vera Valsari, „við emm með
lið í toppbaráttu í flestum vinsælustu
hópíþróttum fyrir utan kannski körfu-
boltann og mikill tími fer í að sækja alla
leiki, þó að áhuginn sé fyrir hendi þá
verður maður að velja og hafna,“ segir
Skúli. Allir eiga þeir bræður börn í íþrótt-
um og reyna að fylgjast vel með þeim og
þá sé hreinlega ekki tími til þess að sækja
alla kappleiki hjá Val.
Valsblaðið 2006
35