Valsblaðið - 01.05.2006, Page 39
Hver er Valsmaðurinn?
2.fIokkur Vals sem varð Reykjavíkurmeistari innanhúss árið 1971. Aftari röð frá vinstri: Halldór Einarsson (Henson), Alexander Jóhannesson,
Páll Ragnarsson, Ingi Björn Albertsson, Hörður Hilmarsson og Bergsveinn Alfonsson. Fremri röð frá vinstri: Þórir Jónsson, Þorsteinn Frið-
þjófsson, Ingvar Elíasson, Ragnar Ragnarsson og Hermann Gunnarsson Jyrirliði.
flokki þannig að ég gat ekki verið heppn-
ari með samherja. Þegar ég byrjaði síðan
að æfa með KR fékk ég vitanlega ekki
að vera í sama flokki og þessir strákar,
þar sem þeir voru mun eldri, og ég hætti
fljótlega eftir að hafa byrjað að æfa með
4. flokki.
Ég flutti í Smáíbúðarhverfið og æfði
aðeins með Víkingi en þar sem ekki var
vel hlúð að okkur skiptum við tíu strák-
ar á einu bretti yfir í Val. Gunnsteinn
Skúlason og Jón Ágústsson voru í þeim
hópi. Mér fannst ég vera kominn heim
þegar ég byrjaði að æfa að Hlíðarenda
árið 1958, ellefu ára gamall. Ég hafði
nánast fengið Val með móðurmjólkinni í
gegnum Hermann frænda og séra Friðrik
þannig að það kom ekki á óvart þótt ég
fyndi Valshjartað slá.
Ég komst fljótt í liðið í 4. flokki en
síðan gerðust þau hörmulegu tíðindi, rétt
fyrir fyrsta leik á íslandsmótinu, að 5.
flokkur var stofnaður. Ég var svo ungur
að ég „gekk niður" um flokk en mér
þótti skelfilegt að fara að spila með ein-
hverjum smábörnum, sem voru reyndar
á sama aldri og ég. Þetta voru Svenni
Alfons, Siggi Jóns, Samúel Erlings og
fullt af góðum strákum. Þjálfarinn var
Elías Hergeirsson, ótrúlega natinn og
skemmtilegur. Ég var gerður að fyrirliða
og fékk þar af leiðandi það hlutverk að
fylla út fyrirliðabækumar sem þá tíðk-
uðust. Ég færði inn nákvæmar upplýs-
ingar um það hverjir vom í liðinu hverju
sinni, hvemig leikurinn var, hverjir skor-
uðu og svo framvegis.
Mér er það minnisstætt að við lékum
til úrslita við Fram í Reykjavíkurmótinu
á gamla Framvellinum við Sjómanna-
skólann. Dómarinn var ekki starfi sínu
vaxinn og notaðist m.a. við stóm klukk-
una á Sjómannaskólanum. Við vorum
4:1 yfir þegar um 10 mínútur voru eftir
af leiknum en dómarinn virtist ósáttur og
beið eftir að Fram jafnaði. Þeim tókst það
og þeir skomðu síðan sigurmarkið þegar
hálfleikurinn hafði varað í 45 mínútur í
stað 25 mínútna. Fram vann því þetta
fyrsta 5. flokksmót, frekar ósanngjamt.
Ég fór í sveit eftir þennan leik en þegar
ég kom aftur í bæinn var haustmótið að
byrja. Sveitin togaði líka í mig næsta
sumar og þá beið boltinn bara en þegar
ég var 13 ára ákvað ég að taka fótbolt-
ann alvarlega. Næstu ár voru hreint út
sagt stórkostlegur tími því margir okkar
voru í handbolta og fótbolta jöfnum
höndum. Við urðum bæði Islands- og
Reykjavíkurmeistarar í 4. flokki í fót-
bolta, unnum Víking m.a. 10:0 í úrslita-
leik. Ári síðar unnum við Víking samtals
29:0 í tveimur leikjum í sömu vikunni
en það skondna var að Víkingur var alls
ekki með slæmt lið.
Á þessum árum var Valur að taka
algjöra forystu liða í Reykjavík varð-
andi félagsstarfið og verður mönnum
eins og Sigurði Marelssyni seint full-
þakkað. Hann mótaði ákveðna stefnu
Vals um þjálfun og félagsstarf ungl-
inga og má líka nefna Áma Njálsson og
Hauk Gíslason í því samhengi. Haukur
var þjálfari 3. flokk árum saman með
frábæmm árangri, afskaplega hógvær og
góður maður. Þarna myndaðist sá sterki
kjarni í Val sem lifir enn á vináttunni og
mun gera um aldur og ævi. Utan æfinga-
tíma vomm við öllum stundum í gamla
fjósinu, horfðum á myndasýningar frá
Sigga Mar og gerðum fleira skemmtilegt.
Ef menn vildu fara í bíó fórum við allir
saman, fimmtán stykki.
Á þeim fimm árum sem við lékum með
Valsblaðið 2006
39