Valsblaðið - 01.05.2006, Page 69

Valsblaðið - 01.05.2006, Page 69
Framtíðarfólk Ég getekki beðið eftir því ao nyja valsnolíín verði tii Katrín flndrésdóttir leikur handbolta með meistaraflokki kvenna Fæðingardagur og ár? Ég er fædd sama dag og maður setur skóinn út í glugga, 11. desember 1986. Nám? Ég er að útskrifast úr MS í vor. Kærasti? Fannar Þór Friðgeirsson. Hvað ætlar þú að verða? Það er ekki ákveðið enn og er alltaf að breytast. Það heitasta þessa dagana er þó að stefna á lyfjafræði. Frægur Valsari í fjölskyldunni? Mamma er „frægasti” Valsarinn í minni ætt. Hún var fyrirliði Vals í handbolta þegar þær urðu íslandsmeistarar árið 1983 og svo urðu þær bikarmeistarar ári seinna. Hvernig hafa foreldrar þínir stutt þig í handboltanum? Þau hafa alltaf stutt mig mikið og varla misst úr leik frá því ég byrjaði. Fyrir utan það eru þau yfirleitt ánægðari en ég ef vel gengur. Hver er besti íþróttamaðurinn í fjöl- skyldunni? Mammaklárlega. Handbolta-, fótbolta-, körfubolta og blakkona með meiru. Hvað gætir þú aldrei hugsað þér að verða? Slátrari er starf sem ég gæti ekki fengið mig til að vinna. Af hverju handbolti? Gömlu voru bæði að þjálfa og spila og þetta var bara ein- hvem veginn sjálfsagt. Af hverju Valur? Frábær klúbbur sem mér leist vel á þegar ég flutti suður og ekki sakaði að mamma er gamall Valsari. Hvernig gekk á síðasta tímabili? Mér fannst við bara spila mjög vel, sér- staklega seinni part tímabils. Við töp- uðum ótrúlega dýrmætum stigum á móti FH í byrjun tímabils sem kostaði okkur íslandsmeistaratitilinn. Við duttum út úr bikamum í fjögurra liða úrslitum. Við tókum þátt í Evrópukeppninni og gekk mjög vel. Svo í lokin tókum við deild- arbikarinn án þess að tapa og að okkar mati var það stór titill þar sem deild- arbikarinn er keppni fjögurra bestu liða. Besti stuðningsmaðurinn? Við Vals- arar erum samt svo heppnir að eiga bestu stuðningsmenn í heimi og það er algjör- lega ómögulegt að gera upp á milli þessa toppfólks sem stendur við bakið á okkur. Koma titlar í hús í vetur? Það er klár- lega stefnan. Möguleikar kvennalandsliðsins í hand- bolta að komast í lokakeppni stór- móts? Ég held að stelpumar eigi bara góða möguleika á að komast á stórmót. Mér finnst liðið hafa verið að sækja í sig veðrið síðustu ár og nú er kominn nýr þjálfari með nýjar áherslur og ég hef mikla trú á þessu. Stærsta stundin? Mér fannst það ótrúlega stór stund þegar ég var þrettán að verða fjórtán og spilaði minn fyrsta meistaraflokksleik. Það var sjónvarps- leikur á móti Stjömunni og ég kom inn á og fintaði Guðríði Gunnsteins upp úr skónum. Það var stór stund. Athyglisverðasti leikmaður í meist- araflokki? Ég er ekki frá því að það sé nýliðinn Hildigunnur Einarsdóttir. Mottó? Maður uppsker eins og maður sáir. Þetta var mér kennt þegar ég var lítil og hef ég haft þetta bakvið eyrað síðan. Leyndasti draumur? Ég hefði ekkert á móti því að geta hald- ið lagi. Við hvaða aðstæður líður þér best? Mér líður best í afslöpp- un uppi í rúmi með góða mynd í tækinu. Fullkomið laugardagskvöld? Góður matur, brownie í eftirrétt og rólegheit í góðra vina hópi myndu alveg virka fyrir mig. Besti hand- boltamað- ur heims? ÓlafurStef- ánsson. B e s t i s ö n g v - a r i ? Bubbi. Besta hljómsveit? Sálin. Besta bíómynd? Það toppar ekkert Stellu í orlofi ég hlæ alltaf þegar ég horfi á hana. Besta bók? Ég er alltof löt við að lesa annað en skólabækur. Held að síðasta bókin sem ég las hafi verið Tár bros og takkaskór, hún var góð. Besta lag? Það er alveg hellingur. Uppá- haldsjólalagið mitt er samt Þú og ég og Jól með Svölu Björgvins. Uppáhaldsvefsíðan? www.valur.is Uppáhaldsfélag í enska boltanum? Liverpool. Ef þú yrðir að vera einhver annar? Angelina Jolie. Fjögur orð um núverandi þjálfara? Þeir em lang flottastir. Ef þú værir alvaldur í Val hvað mynd- ir þú gera? Ég hugsa að ég myndi snúa mér að uppbyggingu yngri flokkanna. Reyna að fjölga iðkendum og halda uppi góðri þjálfun yngri flokka. Nokkur orð um nýju aðstöðuna á Hlíðarenda? Ég kíkti inn í nýju bygg- inguna um daginn og hún er geðveik. Ég held að toppurinn á þessu séu pottamir í klef- unum ég get ekki beðið eftir að höllin verði til. Bloggsíða? www. kataandresar.blogg- ar.is Valsblaðið 2006 69

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.