Valsblaðið - 01.05.2006, Síða 93
Eftir Guðna Olgeirsson
íslaiulsmeislíiraf&.Jl<)kksJáciin&2Q06 EfriVö^jjf'^fffttri: Frcyr Alcsbndchss'ón', /wgnín
Jónsdóttir, BirnaKolbnincirgisdóttir, Kristín Lovísal.drnsdóttir. Jcnný Hardctrdóttir, Valgerdur
Bjarnadóttir, Hclga Birna Jónsdóttir, Sunna Mjóll Sverrisdóttir, Gerdur Guónadóttir, /ngihjörg
Helga Gísladóttir, Kristbjörg Siguröardóttir, lnga Rdn Reynisclóttir. Margrct Lcíra Viöarsdóttir og
Björn Sigurbjörnsson. Neöri rööfrcí vinstri: Hi/dur Antonsdóttir, Anna Karen Kolbeins, Thelma
Haraldsdóttir, Kristrún Heiöa Jónsdóltir, Hckla Dögg Svcinbjörnsdóttir, Elvct Björk Haraldsdóttir,
Þórhi/dur Einarsdóttir, Elín Metta Jenscn, Hansína Rut Gttnnarsdóttir, Anötir Elísabet Helgadóttir
Islandsmeistarar 4.flokks kvenna 2006. A-liö. EJr&röö J'rci vinslri: Ffbyr Alc.xaiu/ersson, Bryndís
Bjarnaclóttir, Tehna Olafsdóttir, Ale.xía Imsland, Kolbrún Sara Mdsdóttir, Helga Birna Jónsdóttir,
Gttörún Elín Jóhannsdóttir, Sigurlaug Guörún Jóhannsdóttir, Sœunn Sif Heiöarsclóttir, Birna Kol-
brún Birgisdóttir, Heiöá Dröfn Antonsclóttir, Björn Sigurbjörnsson. Neöri röðfrd vinstri: Jenný
Haröardóttir, Katiin Gylfadóttir, Fiona Gaxhölli, Kristrún Heiöa Jónsdóttir, Kristín Lovísa Lárus-
dóttir, Geröur Guönadóttir, Svana Rún Herinannsdóttir. Liggjandi: Valgeröur Bjarnadóttir og Elín
Þóra Elíasdóttir.
Carragher og meistari Steven Gerrard eru
mínar helstu fyrirmyndirsegir Freyr
ákveðinn.
Þjálfaraferill hófst á
heimavelli hjá Leikni
Freyr segir að þjálfaraferillinn hafi
byrjað þegar Leiknir byrjaði aftur með
kvennabolta í yngri flokkum. „Ég byrj-
aði með 4. flokk kvenna hjá Leikni, tók
síðan 5. flokk en á þessum tíma var ég
einnig með knattspymuskóla Leiknis
á sumrin ásamt tveimur öðmm þjálf-
umm. Síðasta árið mitt hjá Leikni var
ég með virkilega efnilegan 5. flokk sem
var búinn að mótast vel og ná miklum
framfömm, það endaði með því þær urðu
Reykjavíkurmeistarar þar sem þær unnu
einmitt Valsstelpumar sem ég er með í
dag á markatölu og þar rétt á eftir kom
lið Fram en Bjössi, núverandi þjálfari 3.
flokks kvenna hjá Val var með Fram á
þessum tíma. Tíminn hjá Leikni var mjög
skemmtilegur og hópamir sem ég var að
vinna með virkilega fjömgir."
Fnábænt án hjá 4. flokki Vals
Freyr segir að í fyrra hafi sér boðist að
gerast þjálfari hjá 4. flokki kvenna hjá
Val og hann segir að síðasta tímabil hafi
verið virkilega gott hjá flokknum, en
nýlega skrifaði hann undir þriggja ára
samning um áframhaldandi þjálfun hjá
Val. „Þessi hópur sem ég fékk í hendur
er hreint út sagt magnaður og það hefur
verið frábært að vinna með þeim. Þessar
stelpur em ólmar í að bæta sig og ætla
sér að ná langt og ég er hér til þess að
hjálpa þeim til þess. Flokkurinn vann öll
mót sem hann tók þátt í og tapaði ein-
ungis einum leik á öllu árinu og það segir
allt sem segja þar um efniviðinn sem er
í flokknum, en það þýðir samt ekki að
þessar stelpur séu með áskrift að því að
þær verði góðir leikmenn í framtíðinni.
Það er mitt verk að halda þeim á jörðinni
og gera þeim grein fyrir að þetta kostar
vinnu og vilja til þess að bæta sig á hverri
æfingu og næsta tímabil verður virkilega
spennandi,“ segir Freyr ákveðið.
Hvað einkennir góðan
barna- on unglingaþjálfara í
íþróttum?
Freyr segir erfitt að svara þessari spum-
ingu og í raun er ekkert eitt rétt svar til.
„Það er mikilvægt að þjálfarinn sé metn-
aðarfullur og tilbúinn að leggja það á sig
til þess að ná eins miklu út úr iðkend-
unum og hann getur. Þjálfari bama og
unglinga þarf að vera karakter sem nær
til þeirra og þau bera virðingu fyrir og
trúa á,“ segir Freyr eftir nokkra umhugs-
un.
Mikilvægi foreldrastarfs
Freyr telur gildi foreldrastarfs ómetanlegt
fyrir íþróttafélög og bömin sjálf og með
öflugu foreldrastarfi opnist nýjar dyr fyrir
þjálfara til þess að gera hlutina betur og
einbeita sér að þjálfuninni. „Ég mæli með
því að foreldrar styðji ávallt liðið í gegn-
um súrt og sætt, vera jákvæðir og góðar
fyrirmyndir. Eitt sem á aldrei að heyrast
frá foreldmm í yngri flokkum em blóts-
yrði og væl í garð dómara og andstæð-
inga. í stuðningi við starfið er mikilvægt
að vera eins virkur og mögulegt er. Það
er mjög mismunandi hversu miklum tíma
foreldrar eru tilbúnir til að verja í starfið,
en ég get sagt það frá mínum sjónarhóli
að ég met hverja mínútu sem foreldrar
gefa af sér í foreldrastörfin mjög mikils,"
segir Freyr ákveðið.
Með metnað og vilja að
vopni
Að mati Freys eiga iðkendur að sýna
metnað og vilja á æfingum og í keppni.
„Það er ekkert meira pirrandi fyrir þjálf-
ara en að horfa á efnilegan iðkanda sóa
Valsblaðið 2006
93