Valsblaðið - 01.05.2010, Side 102
Ein affrœgari handboltamyndum
sögunnar var tekin í landsleik Islendinga
og Jiígóslava í Laugardalshöll árið
1987. Myndin sýnir Guðmund Guð-
mundsson, núverandi landsliðsþjálfara
Islands,fara inn úr horninu. Saracevic
laumar hendinni í ökklann á Guðmundi
og eyðilagði fyrir honum fœrið.
Dómarinn sá ekkert athugavert. Einar
Olafsson Ijósmyndari tók myndina og
birtist hún upphaflega í Pjóðviljanum.
HSÍ sendi hana ásamt harðorðri kvörtun
til EHF.
því er átt við að hornamaðurinn haldi sig
utar í horninu. Ef leikmaður fer of djúpt
þá er erfitt að skora þar sem skothornið
þrengist eftir því sem farið er innar í
homið og markmaðurinn á auðveldara
með að verja.
Leysa inn. Þetta er nokkuð sem horna-
menn stunda. Þegar þeir leysa inn, þá
fara þeir inn á línuna og reyna annars
vegar að skapa sér rými til að fá boltann
og skora en hins vegar að hafa áhrif á
það hvernig vöm andstæðinganna spilar
og geta með því móti skapað færi fyrir
hina útispilarana í liðinu. Það er einnig til
í dæminu að aðrir en hornamenn leysi
inn, en það er þá gjarnan í tengslum við
einhver leikkerfi.
Leikkerfi. Leikkerfi felur í sér fyrir-
fram ákveðnar tilfærslur á sóknarmönn-
um til að rugla vöm andstæðinganna,
skapa með því færi og skora. Upphaf
leikkerfis má oft sjá þegar leikstjómandi
kallar einhver einföld skilaboð (t.d. nafn
á einhverjum samherja, einhverja tölu
eða vinstri eða hægri langur eða stuttur)
og leikmenn taka að færa sig til með
ákveðnum hætti.
Hraðaupphlaup. Þegar vörnin vinnur
boltann eða markmaður ver skot frá and-
stæðingi þá reynum við að komast í sókn
í einum grænum, annaðhvort með drippli
eða löngum sendingum á þann sem er
fyrstur fram.
Að skora með uppstökki. Skyttur
gera það gjarnan að koma hlaupandi að
vörninni með boltann og stökkva upp og
skjóta á markið. Það er ekki neikvætt
þegar sagt er um skyttu að hún sé upp-
stökk, þvert á móti er þetta verðmætur
hæfileiki í handbolta.
Undirhandarskot. Skotið er á mark
en hæð Skotsins er neðan axlar, þ.e. hend-
inni er beitt þannig að boltinn í skothend-
inni er neðan axlar.
Stöðuskot. Skotið er á mark án upp-
stökks eða gegnumbrots.
Fara á punktinn. Taka víti.
Stoðsending. í víðustu merkingu þýðir
þetta einfaldlega síðasta sendingin á þann
sem skaut á markið. í þrengri merkingu
er þetta eingöngu notað yfir þann sem á
sendinguna á línu- eða hornamann sem
skaut á markið.
Vörn og markvarsla
Niður. Enn og aftur mætti halda að hand-
boltinn færi fram á mörgum hæðum. En
stundum heyrist kallað: Koma niöur. En
þá er verið að skipa varnarmönnum að
spila vömina aftarlega, þ.e. halda sig við
línuna.
Indíáni. Þegar einn maður spilar fyrir
framan vörnina kallast hann indíáni.
Hann hefur fyrst og fremst það hlutverk
að trufla leikkerfi og sóknartilburði and-
stæðinganna. Indíáninn hefur mikið frelsi
til að færa sig til hliðanna eftir því sem
ástæða er til.
5- 1 vörn. Ákveðin tegund varnarleiks
þar sem allir spila vörnina neðarlega (þ.e.
við eigin línu) en em með einn leikmann
sem spilar fyrir framan.
6- 0 vörn. Allt liðið spilar vörnina neð-
arlega. Ef varnarliðið er hávaxið þá er
slík vöm þægileg. Línumenn fá lítið rými
en skyttur andstæðinganna geta fengið að
athafna sig óáreittir. En hávaxna vömin
getur þá varist í hávörn.
3-2-1 vörn. Vömin er skipulögð þann-
ig að hornamenn og miðjumaður eru neð-
arlega. Á milli þeirra eru leikmenn sem
spila framar en fremstur er oddamaður.
Maður á mann, vörn. Eins og nafnið
bendir til á hver varnarmaður að gæta
eins sóknarmanns hvert sem hann fer.
Þessa vöm er ógemingur að spila heilan
leik en henni er oft beitt í lok jafnra leikja
þegar lið leggja allt í sölumar til að vinna
boltann og skora.
Grunnstaða varnarmanns. Hendur
fyrir ofan axlir (eins og upp með hendur
stellingin í bíómyndunum) en líkamanum
snúið þannig að sú hendi varnarmanns
sem mætir skothendi andstæðings skal
vera framar.
Hávörn. Þegar vörnin ver með því að
stökkva beint upp með hendur beint upp,
þá segjum við hávörnin tók skotið.
Að taka úr umferð. Varnarmaður sem
stendur alveg ofan í góðum sóknar-
leikmanni andstæðinganna og hindrar að
hann taki þátt í sókninni er að taka úr
umferð. Bannað er að taka úr umferð í
5.-8. flokki.
Að fiska. Vamarmaður sem réynir að
ná boltanum þegar hann berst á milli
sóknarmanna andstæðinganna er að
fiska.
Júgóslavneska bragðið. Óþokkabragð
sem felst í því að rífa í fætur á leikmanni
sem fer inn úr hominu og taka hann úr
jafnvægi. Mörg alvarleg slys hafa orðið
vegna þessa. Sá sem verður uppvís að
því að beita þessu má búast við því að fá
rautt spjald og útilokun frá leik. Það er
litið mjög alvarlegum augum að beita
þessu stórhættulega bragði.
Gult. Viðvörun vegna leikbrots. Dóm-
ari lyftir gulu spjaldi.
Tvær mínútur. Leikmaður sem brýtur
illa af sér er sendur út af í tvær mínútur.
Liðið spilar manni færri á meðan. í yngri
flokkunum þar sem leiktíminn er mun
styttri er refsitíminn ein mínúta en dóm-
urinn heitir eftir sem áður 2 mínútur.
Rautt. Leikmaður sem brýtur illa af
sér eða hefur í þrígang fengið tvær mín-
útur hann fær að sjá rauða spjaldið hjá
dómaranum. Það þýðir útilokun frá leikn-
um og liðið spilar manni færri í tvær
mínútur. Þegar tvær mínútur eru liðnar
má nýr maður koma í stað þess sem var
útilokaður. í kjölfar þess að hafa fengið
rautt spjald þurfa leikmenn að taka út
leikbann.
102
Valsblaöið 2010