Búnaðarrit - 01.01.1979, Page 21
SKÝRSLA BÚNAÐARMÁLASTJÓRA
15
Svalbarðseyri þessa daga. Hinn 7. september var hann í sömu
erindagjörðum á kjötmatsmannanámskeiði á Selfossi.
Hinn 1. október fór búnaðarmálastjóri ásamt Hjalta Gestssyni
flugleiðis til Akureyrar í tvíþættum erindum. Fyrst fórum við á
héraðssýningu á hrútum á Möðruvöllum, þar sem við sáum marga
ágæta hrúta, marga þá beztu undan úrvalshrútum, sem verið hafa á
sæðingarstöðvum. Næsta dag héldum við Hjalti norður í Þistilfjörð
ásamt ráðunautunum Einari E. Gíslasyni, Ólafi Vagnssyni og Leifi
Kr. Jóhannessyni til að kaupa úrvals lambhrúta í Þistilfirðinum.
Var þetta hin lærdómsríkasta ferð. Voru keyptir nokkrir álitlegir
lambhrútar, en fáir frábærir að gerð, hvernig sem þeir reynast.
Fannst mér fénu ekki hafa farið nægilega fram síðustu 20 árin að
vaxtarlagi og holdafari, þótt óhemju glæsilegar kindur séu þar til.
Þistilfjörður var Mekka íslenzkrar sauðfjárræktar fyrir 30-40
árum. Hinn 14. október fór búnaðarmálastjóri ásamt Einari
Ólafssyni og Árna G. Péturssyni norður í Skagafjörð, en þangað
vorum við boðnir á héraðssýningu á hrútum, er haldin var hinn 15.
október. Það var hin glæsilegasta sýning og líklega sterkasta
héraðssýning á hrútum, sem haldin hefur verið hér á landi.
Ferðalög erlendis. Búnaðarmálastjóri fór utan 1. ágúst á aðal-
fund Norrænu bændasamtakanna (NBC), er haldinn var á Álands-
eyjum 2.-4. ágúst, eins og skýrt er frá hér að framan. Eftir þann
fund hélt hann til Bretlands, þarsem hann dvaldi nokkra daga í fríi.
en var svo í Edinborg nokkra daga, til þess að fylgjast með rann-
sóknum Sigurgeirs Þorgeirssonar og ræða við þá, sem þar hafa
umsjón með þeim rannsóknum, en Sigurgeir vinnur að rann-
sóknum sínum til doktorsprófs að hluta hér heima undir minni
umsjón.
Hirti E. Þórarinssyni var ásamt búnaðarmálastjóra og einhverj-
um öðrum búvísindamanni á sviði sauðfjárræktar boðið til Sovéi
Eistlands til vikudvalar 25. ág.-l. sept. 1978. Búnaðarmálastjóri
treysti sér ekki til að þiggja boðið, en Hjörtur E. Þórarinsson, Árni
G. Pétursson, ráðunautur, og Stefán Sch. Thorsteinsson, sérfræð-
ingur, fóru í þessa ferð, sem reyndist í senn lærdómsrík og ánægju-
leg.