Búnaðarrit - 01.01.1979, Page 23
SKÝRSLA BÚNAÐARMÁLASTJÓRA
17
Dýrmundssonar. Haldið var rakleitt til Borgarness, þar sem
sláturhúsið og frystihús Kaupfélagsins var skoðað og sýnd voru
dilkaföll af mismunandi gæðum og flokkunt. Hádegisverður var
snæddur í boði Kaupfélags Borgfirðinga. Eftir hádegi var haldið að
Hesti, þar sem gestunum var sýnt féð og skýrt frá starfsemi búsins.
Þaðan var haldið að Gullberastöðum, þar sem fjárhús og fé var
skoðað og nokkur hross. Er þar svo frábær fóðrun og hirðing á
glæsilegum skepnum, að unun er að sýna þær gestum, hvort sem
þeir eru innlendir eða erlendir. Á Gullberastöðum var géstunum
boðið síðdegiskaffi að þjóðlegum sið. Frá Gullberastöðum var
haldið að Hvanneyri, þar sem búfé var skoðað og kvöldverður
snæddur. Þaðan var haldið til Reykjavíkur síðla kvölds. Laugar-
daginn 20. maí reyndu gestirnir við silungsveiði undir leiðsögn Þórs
Guðjónssonar, veiðimálastjóra, og sýndi hann þeim einnig Kolla-
fjarðarstöðina. Sunnudaginn 21. maí bauð landbúnaðar-
ráðuneytið sendinefndinni í ferð um Suðurland. Var Haukur
Jörundarson, skrifstofustjóri, fararstjóri, en með honum voru
einnig búnaðarmálastjóri og ráðunautarnir Árni G. Pétursson og
Hjalti Gestsson. Var þetta fyrst og fremst skemmtiferð þótt komið
væri á nokkra staði, þar sem búskapur var skoðaður. Fyrst var
haldið að Hlíðarenda í Fljótshlíð, þar sem sagt var frá nokkrum
sögustöðum Njálu, en svo vildi til, að herra Kabin var þaullesinn i
Njálu og einn af þátttakendum í förinni var einmitt úr Eysýslu, þar
sem Gunnar á Hlíðarenda barðist sér til vegsauka forðum. Hádeg-
isverður var snæddur í boði landbúnaðarráðuneytisins að Hvols-
velli. Þaðan var haldið í Gunnarsholt, staður og bú skoðað og
veitingar þegnar. Þaðan var farið að Oddgeirshólum, þar sem búið
var skoðað. Að því búnu var haldið til Reykjavíkur.
Mánudaginn 22. maí notaði sendinefndin í Reykjavík til við-
ræðna við embættismenn o. s. frv. Síðdegis var þeim íslendingum.
sem mest höfðu verið nteð sendinefndinni, boðið i Sendiráð
Sovétríkjanna til kveðjuhófs. Næsta dag hélt sendinefndin heim.
Gestirnir létu vel af ferðinni og sögðust hafa áhuga fyrir að kaupa
fé á íslandi til kynbóta.
Eftir þessa heimsókn var tveim þriggja manna sendinefndum frá
íslandi boðið til Sovétríkjanna. Skýrt hefur verið frá þeirri nefnd-
inni, sem boðið var til Sovét Eistlands og fór fyrr. Hin sendinefndin
fór beint til Moskvu. En í henni voru Halldór E. Sigurðsson. fvrr-