Búnaðarrit - 01.01.1979, Blaðsíða 70
64
BÚNAÐARRIT
gripir alls, sem er 6 færri en árið áður. Af þeim voru 19 holdakýr, 2
naut á 3. ári, 4 ásetningskvígur á 2. ári og 13 kálfar. Holdanautið
Nessi 75515 frá Gunnarsholti, sem ekki hafði verið hægt að nota til
sæðinga á Nautastöðinni, var eitt með kúnum fyrstu 5 vikurnar
eftir, að til þeirra var hleypt, en tveir synir Viska 72509 settir til
viðbótar 21. ágúst, þar sem óvíst var, hvernig halda mundi við
Nessa. Var hann felldur 22. nóv. ásamt 5 kúm, og daginn eftir var
11 geldneytum á 2. ári slátrað. Alls fæddust 15 kálfar. Tveir dóu í
fæðingu og einn í skurði, nýfæddur. Voru því talsverð áföll að þessu
sinni í ekki stærri hjörð. Hinn 23. nóv. tók ég mál af föllum þeirra
gripa á 2. ári, sem þá var slátrað. Hins vegar reyndist ekki unnt að
taka mál af þeim lifandi, þar sem flutningur í sláturhús var ákveðinn
fyrirvaralaust. Geldneytin 11 vógu að meðaltali 119 kg. Var stór
sveifla á þyngdinni, 2 gripir undir 100 kg og 3 yfir 140 kg. Nessi
75515 hafði 297 kg fallþunga.
Sóttvamarstöðin íHrísey. Á árinu 1978 báru 12 kýr að 2. kálfi, og
ein í viðbót bar nú í janúar, en kálfur hennar lifði ekki. Tvær kýr
festu ekki fang eftir 1. kálf, og sú þriðja lét fóstri. Hafði sú hin sama
átt dauðan kálf árið áður. Þessar 3 kýr voru felldar svo og þær, sem
aldrei höfðu fest fang. Kýrnar 12 báru á tímabilinu frá 27. júlí til 2.
des. Sjö þeirra áttu naut, en 5 kvígur. Allir eru þessir kálfar undan
nautinu Repute of Castlemilk (R. O. C.), blágráir eða mósóttir.
Nýfæddir vógu kálfarnir frá 28 til 39 kg, en að meðaltali 32,2 kg.
Kálfar undan 5 alíslenzkum kúm vógu að meðaltali 35,4 kg, en
kálfar undan 7 kúm, sem voru undan alíslenzkum mæðrum, en
blendingsnautum frá Gunnarsholti, vógu 30,0 kg að meðaltali.
Þarna er 5,4 kg munur, en alíslenzku kýrnar gengu með 6 dögum
lengur að meðaltali en hinar. Þetta eru of fáir gripir til þess, að af
þessu megi draga marktæka ályktun um líkur á fæðingarþunga
kálfa undan hreinum íslenzkum kúm og hreinum Gallowaynautum,
enda kálfarnir allir undan sama nauti. Hefði í þessu sambandi verið
fróðlegt að hafa fleiri gripi í þessum hópi, því að væntanlega verður
nautakjötsframleiðslan í framtíðinni byggð á blendingsræktun.
Þyngdaraukning á kálf á dag frá fæðingu til 2. jan. var afar svipuð
í báðum flokkunum, þ. e. 957 g hjá kálfum undan blendingum, en
951 hjá þeim, sem áttu alíslenzkar mæður. Athuga ber, að tals-
verður aldursmunur var milli hópanna, þ. e. meðalaldur kálfa