Búnaðarrit - 01.01.1979, Page 86
80
BÚNAÐARRIT
sjónarmið og skoðanir, sem uppi eru um landnýtingar- og land-
græðslumál. Allmikið hefur verið rætt og ritað um það málefni á
liðnu ári, t. d. um beitarþolsrannsóknir, og tel ég þá umræðu í heild
hafa verið þarflega.
Skrifstofustörf Haustið 1977 hóf ég könnun á skiptingu sauðfjár og
hrossa á milli heimalanda og afrétta og nýtingu vetrarbeitar í öllum
sveitarfélögum Iandsins. Lauk því verki síðla sumars, og eru helztu
niðurstöðurnar birtar í Frey, 19. tbl. okt. 1978 og 1. tbl. jan. 1979.
Er ég þakklátur öllum þeim, sem lögðu mér Iið við söfnun þessara
gagnlegu upplýsinga, sem ekki hafa áður verið tiltækar. Talsvert
var um, að gróðurverndarnefndarmenn, búnaðarþingsfulltrúar,
ráðunautar, bændur og ýmsir aðrir leituðu til mín, bæði á skrifstofu
og í síma, varðandi ýmis landnýtingarmálefni. Nokkrum sinnum
aðstoðaði ég við móttöku erlendra gesta og töluvert var um bréfa-
skriftir og skýrslugerðir, t. d. vegna beiðna um ýmiss konar upplýs-
ingar, bæði fyrir einstaklinga og opinberar stofnanir. Ég skrifaði
allmargar stuttar greinar, einkum fyrir Frey og Handbók bænda, og
undirbjó nokkur fjölrituð erindi fyrir ráðstefnur heima og erlendis,
samtals rúmlega 20 handrit. Þá tók ég þátt í undirbúningi deildar
bændasamtakanna á Landbúnaðarsýningunni á Selfossi og starfaði
í undirbúningsnefnd fyrir Ráðunautafund Búnaðarfélags íslands
og Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins eins og síðastliðið ár.
Ferðalög. Sem fyrr fór ég nokkrar ferðir til að kynna mér og
aðstoða við UNDP/FAO beitartilraunir (Álftaver, Auðkúluheiði,
Hestur, Kálfholt, Sölvaholt), og einnig tók ég þátt í endur-
skipulagningu beitartilraunar á Hvanneyri. Farið var í lengri eða
skemmri ferðir um ýmsar sveitir, einkum á Suður- og Suðvestur-
landi, Vesturlandi og Norðurlandi til að kanna ástand beitilanda,
bæði heimahaga og afrétta, samtals um 15 ferðadaga. Héraðs-
ráðunautar og ýmsir aðrir greiddu götu mína í þessum ferðum og
bændur veittu mér góðar móttökur. Er ég þeim öllum þakklátur.
Ferðir um Norðurland voru einkum farnar vegna beitarmálefna
í Skagafirði og A.-Húnavatnssýslu, t.d. upprekstur á
Eyvindarstaðaheiði, og í S.Þingeyjarsýslu, undirbúningur ítölu-
gerðar fyrir Bárðdælahrepp og Hálshrepp. Flestar af lengri ferðun-
um fór ég með starfsmönnum Landgræðslu ríkisins, og var samstarf
okkar á árinu með ágætum í hvívetna. Af styttri ferðum mætti t. d.