Búnaðarrit - 01.01.1979, Page 87
SKÝRSLURSTARFSMANNA
81
nefna skoðun á hrossahögum á Suðvesturlandi og heimsóknir í
fáeinar réttir á Suðurlandi. Einnig var komið til nokkurra bænda til
að ræða um nýtingu beitilanda á jörðum þeirra. Þótt gróður kæmi
seint til og væri víðast hvar rýr fyrri hluta sumars rættist vel úr
sprettu er á leið, og fé var óvenju vel dreift í högum allt til rétta. Að
jafnaði voru dilkar í vænna lagi haustið 1978.
Tvisvar á árinu ferðaðist ég til útlanda. Ferðir þessar voru báðar
hinar gagnlegustu, og kann ég stjórn félagsins og búnaðarmála-
stjóra beztu þakkir fyrir þá fyrirgreiðslu, sem mér var veitt. Greint
er frá ferðunum í Frey, 14. tbl. júlí 1978 og 2. tbl. jan. 1979.
Fundirográðstefnur. Á árinusat égfjölmarga fundi íReykjavíkum
beitarrannsóknir, landgræðslumál, afréttarmál o. fl. Var ég fulltrúi
Búnaðarfélags íslands á Náttúruverndarþingi í Reykjavík og á
aðalfundi Landverndar í Ölfusborgum, þar sem ég greindi frá þætti
Búnaðarfélags íslands í framkvæmd Landgræðsluáætlunar. Á hin-
um árlega Ráðunautafundi Búnaðarfélags íslands og Rann-
sóknarstofnunar landbúnaðarins flutti ég tvö erindi, og voru þau
birt í Frey, 8. og 9. tbl. 1978. Fræðsluerindi flutti ég á bændafund-
um í ölfusi og á Kjalarnesi, á aðalfundi Búnaðarsambands Snæ-
fellinga, í Bændaskólanum á Hvanneyri, í Garðyrkjuskóla ríkisins á
Reykjum, hjá Hestamannafélaginu Fák í Reykjavík, hjá
Rotaryklúbbnum Görðum, á fræðslufundi fyrir starfsmenn Búnað-
arfélags Islands og Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins og þrjú
erindi flutti ég erlendis, nokkuð á annan tug erinda samtals. Tvisvar
kom ég fram í viðtalsþáttum í útvarpi. Auk þess mætti ég á fundum
með fulltrúum nokkurra sveitarfélaga á Vestur- og Norðurlandi,
oftast ásamt landgræðslustjóra, til skrafs og ráðagerða um land-
nýtingu og upprekstrarmál á viðkomandi svæðum. Ljóst er, að
áhugi bænda á þessum málum fer vaxandi.
önnur störf. Auk þess, sem að framan greinir, hefi ég sinnt nokkuð
öðrum verkefnum, flestum minni háttar, einkum í sambandi við
sauðfjárrækt. Mætti þar helzt nefna fyrirgreiðslu vegna samstilling-
ar gangmála sæðingaáa, skýrslugerð vegna skráningar svampa á
lyfjaskrá, hjálp við útvegun og leiðbeiningar um notkun þeirra, og
aðstoð, er ég veitti Sauðfjárveikivörnum við samningu og kynningu
á reglum um varnaraðgerðir gegn riðuveiki í sauðfé á Reykja-
víkursvæðinu. Ég sá um útvegun efna og skipulagði áframhaldandi