Búnaðarrit - 01.01.1979, Page 373
HRÚTASÝNINGAR
367
Viðvíkurhreppur. Sýningin var illa sótt, aðeins 20 hrútar
sýndir frá 5 bæjum. Þeir fullorðnu vógu 5,6 kg minna og þeir
veturgömlu 3,1 kg minna en jafnaldrar þeirra í héraðinu. I.
verðlaun hlutu 8 hrútar eða 40%. Beztir voru Angi og Refur
Angasynir á Syðri Hofdölum og Goði Molason í Hofs-
staðaseli. Þeir voru valdir á héraðssýninguna og hlutu Angi
og Refur I. verðlaun A, en Goði I. verðlaun B. Það er
nokkur mælikvarði á kosti fjárstofns hverrar sveitar, að ekki
skuli hægt að senda hrút á héraðssýningu, sem nær heiðurs-
verðlaunum, þrátt fyrir betri flokkun hrúta en fyrir 4 árum.
Akrahreppur. Þar var sýning á tveimur stöðum, Uppsöl-
um og Frostastöðum. Alls voru sýndir 92 hrútar á báðum
sýningunum eða 24 fleiri en 1974. Fullorðnu hrútarnir vógu
0,8 kg minna og veturgamlir 2,3 kg minna en jafnaldrar
þeirra í héraðinu. Fyrstu verðlaun hlutu 47 hrútar eða 51%.
í þessari sveit voru hrútar að meðaltali lágfættastir í Skaga-
firði á þessu hausti. Þeir eru líka margir vel gerðir og rækt-
arlegir, þó ber dálítið á því, að frambygging sé ekki rýmis-
mikil og kemur það fram í brjóstmáli hrútanna.
Beztir á sýningunni voru Tumi Hlutsson í Flatatungu,
Sproti Angason á Flugumýri og Norðri Sólonsson á Stóru-
Ökrum. Hlutu þeir allir heiðursverðlaun á héraðs-
sýningunni. Aðrir, sem valdir voru á héraðssýninguna, voru
Hnokki á Uppsölum, Rjómi í Flatatungu, Sær í Miklabæ og
Hnöttur á Frostastöðum, og hlutu þeir allir I. verðlaun A.
Lýtingsstaðahreppur. Þar voru haldnar tvær sýningar og
sýndir alls 105 hrútar. Fullorðnu hrútarnir vógu 2,2 kg
minna og þeir veturgömlu 2,5 kg minna en jafnaldrar í
héraðinu. Fyrstu verðlaun hlutu 38 hrútar eða 36,2%. Um
20% af sýndum hrútum náðu engum verðlaunum eða III.
verðlaunum, sem er of hátt hlutfall. Keppa þarf að því, að
nota ekki svo illa gerða hrúta, hvorki í þessari sveit né
annarri.
Á héraðssýningu voru valdir Dreki Veggsson á Tungu-
hálsi, sem hlaut þar heiðursverðlaun, Dvergur á Tunguhálsi