Búnaðarrit - 01.01.1979, Page 377
HRÚTASÝNINGAR
371
veturgamlir. Þeir fullorðnu vógu 89,4 kg að meðaltali, en
þeir veturgömlu 71,7 kg. Báðir aldursflokkar voru því næst
léttastir sinna jafnaldra í sýslunni. Af fullorðnu hrútunum
voru beztir Bessi Björns á S.-Hóli og Frímann Jónmundar í
Kambakoti. Enginn veturgamall hrútur hlaut fyrstu verð-
laun.
Engihlíðarhreppur. Par voru sýndir 63 hrútar, 46 tveggja
vetra og eldri og 17 veturgamlir. Þeir fyrrnefndu vógu til
jafnaðar 95,8 kg, en þeir síðarnefndu 79,5 kg. Fullorðnu
hrútamir vom 1,7 kg og þeir veturgömlu 1,9 kg yfir meðal-
tali sýslunnar. Alls hlutu 26 hrútar I. verðlaun eða 41,3%
sýndra hrúta, en 45% fyrir fjómm ámm. Snúður Ævars í
Enni var beztur af þriggja vetra hrútum og eldri, en Þór Árna
á Sölvabakka stóð efstur af tvævetlingunum. Peir eru báðir
kostamiklar kindur, rýmisgóðar og þéttholda. Veturgamli
hrúturinn, Búi í Enni, var álitlegastur í sínum aldursflokki.
Hann er jafnvaxinn og ræktarlegur.
Bólstaðarhlíðarhreppur. Þarvoru sýndir 44 hrútar, 36 2ja
vetra og eldri og 8 veturgamlir. Peir fullorðnu vógu 95,7 kg
að meðaltali, en þeir veturgömlu 78,7 kg. Báðir aldurs-
flokkar voru því nokkru þyngri en meðaltal sýslunnar.
Fyrstu verðlaun hlutu 30 hrútar eða 68% sýndra hrúta, en
58 % 1974. Sýningin bar þess merki, að bændur vanda vel val
lífhrúta og notfæra sér sæðingar til mikilla bóta. Af 3ja vetra
hrútum og eldri stóðu efstir Bliki Jakobs á Hóli og Blær
Bjarna á Bollastöðum, en þeir eru báðir synir Mola sæðis-
gjafa frá Hesti. Þeir eru útmetnir einstaklingar, jafnvaxnir,
útlögugóðir og lágfættir, með ágæt lærahoid. Tvævetling-
arnir Klettur Klettsson á Leifsstöðum og Álfur Hlutsson á
Hóli vom álitlegastir í sínum aldursflokki og Óskírður
Sigurjóns á Steiná og Sæmi Ingólfs á Bollastöðum af þeim
veturgömlu.
Svínavatnshreppur. Sýndir voru 50 hrútar, 28 fullorðnir
og 22 veturgamlir. Peir fullorðnu vógu 90,4 kg til jafnaðar,
en þeir veturgömlu vógu 77,5 kg. Tveggja vetra hrútarnir og