Búnaðarrit - 01.01.1979, Page 382
376
BÚN AÐARRIT
Tvævetru kollóttu hrútarnir Dropi og Reykur Björns á
Reykjum eru jafnvaxnar kindur, en Dropi mætti vera
bakbreiðari. Af hyrndum hrútum var efstur Dalsson Guð-
mundar á Mýrum. Hann er vel byggður og ræktarleg kind.
Bátur á Syðra-Ósi stóð efstur af kollóttu veturgömlu hrút-
unum, en Brynjar Snúðsson á Staðarbakka af þeim hyrndu.
Ræktun á kollótta fjárstofninum virðist ganga vel í hreppn-
um og ættu bændur að halda áfram á sömu braut.
Fremri-Torfustaðahreppur. Sýndir voru alls 84 hrútar, 57
fullorðnir og 27 veturgamlir. Tveggja vetra hrútar og eldri
vógu 92,9 kg, sem er 1,0 kg minna en meðaltal sýslunnar, og
þeir veturgömlu 82,1 kg, sem er 0,5 kg meira en hjá jafn-
öldrum þeirra í héraðinu. Fyrstu verðlaun hlutu 43 hrútar
fullorðnir og 11 veturgamlir eða 64,3%, en 49,3% 1974.
Röðun hrúta hefur því batnað verulega, enda fór enginn_
hrútur í úrkast, en einn hlaut III. verðlaun. Beztir af kollótt-
um hrútum 3ja vetra og eldri voru þeir Svanur Hauks á
Haugi og Kollur Jóhanns á Efra-Núpi, en af hyrndum Móri
Axels á Bjargi, Spakur Helga á Fosshóli og Óskírður Aðal-
björns á Grundarási. Fjórir þeir fyrst nefndu eru allir
virkjamikiir og þróttlegir einstaklingar, en Grundaráshrút-
urinn er allur minni og þéttari og klettþungur miðað við
stærð. Snær, Stubbur og Lokkur Axels á Bjargi og Svartur á
Haugi eru allir álitlegir hrútar, Svartur er þó fullbakmjór
miðað við vænleika. Veturgömlu hrútarnir Jaðar Gunnlaugs
á Kollafossi og Pokki Þorvaldar á Ytra-Bjargi eru snotrar
kindur.
Staðarhreppur. Par voru sýndir 57 hrútar, 38 fullorðnir,
sem vógu 92,7 kg að meðaltali, og 19 veturgamlir, sem vógu
79,8 kg til jafnaðar. Fullorðnu hrútarnir vógu 1,2 kg minna,
en þeir veturgömlu 1,5 kg meira en jafnaldrar þeirra í hér-
aðinu. Fyrstu verðlaun hlutu 19 hrútar 2ja vetra og eldri og 6
veturgamlir eða 43,9%, en 40% fyrir fjórum árum. Tveir
hrútar fengu engin verðlaun og aðrir tveir hlutu III. verð-
laun. Af kollóttum hrútum 3ja vetra og eldri stóðu efstir