Búnaðarrit - 01.01.1979, Page 385
HRÚTASÝNINGAR
379
Stefáns Ólafssonar. í Borgarhreppi þarf að vanda betur
uppeldi hrúta og lífhrúta val.
Alftaneshreppur. Þar voru aðeins sýndir 5 hrútar, allir frá
Leirulækjarseli, og hlutu 3 I. verðlaun, tveir þeirra út af
sæðisgjöfum komnir. Alltof mikil deyfð ríkir í sauðfjár-
ræktarmálum í Álftaneshreppi og þurfa fjáreigendur þar að
taka sig stórlega á í þeim efnum, svo réttlætanlegt sé, að þeir
stundi áfram þá búgrein.
Hraunhreppur. Þar voru sýndir 47 hrútar, 29 fullorðnir og
18 veturgamlir. Sýning var háð á tveimur stöðum í hreppn-
um vegna sauðfjárveikivarna, um hættu á útbreiðslu á
garnaveiki, þótt engin varnarlína sé enn til staðar í
hreppnum. Fékkst því minni samanburður á gæðum hrúta
innbyrðis. Yfir heildina voru lakari hrútar í vesturhluta
hreppsins, háfættari og grófbyggðari. Nokkuð bar og á kjúku-
veilu og röngum skoltum. Mikill hluti hrúta var rýr í lærum.
Soldánssynir báru af að gæðum og nokkrir aðrir sæðishrútar.
í austurhluta hreppsins voru beztir af fullorðnum hrútum
Soldánssynirnir Depill Eiríks á Brúarlandi, Lambi í Tröðum
ættaður frá Skiphyl og Stráss Ólafs í Hundastapa. Öðlingur
Dalsson á Brúarlandi var talinn beztur af veturgömlum.
Borgarfjarðarsýsla
Þar voru sýndir 376 hrútar, 206 fullorðnir og 170 vetur-
gamlir. Sýningar voru nú fjölsóttari en fyrir fjórum árum, en
hrútar heldur léttari. Áberandi var, að gæðum hrúta hafði
yfirleitt hrakað í þeim sveitum, sem ekki nutu lengur endur-
nýjunar á hrútastofni frá Hesti. Bendir það til, sem vitað var,
að aldrei má slaka til með fjárval. Fyrstu verðlaun hlutu 129
hrútar fullorðnir, sem vógu 101,2 kg, og 47 veturgamlir, er
vógu 83,8 kg, eða 46,8% sýndra hrúta. Er það mun lakari
röðun en var 1974, en þá hlutu 62,5% hrúta I. verðlaun.
Hálsahreppur. Þar voru aðeins sýndir 16 hrútar, 11 full-
orðnir, sem voru léttastir jafnaldra sinna í sýslunni, og 5