Búnaðarrit - 01.01.1988, Síða 13
Helstu viðfangsefni á árinu.
Árið var um margt sérstætt hvað varðar störf Búnaðarfélags íslands. Þess
var minnst með mörgum hætti að liðin voru 150 ár frá stofnun Suður-
amtsins húss- og bústjórnarfélags. Fyrri stofnfundur þess félags var 28.
janúar 1837 og hinn síðari 5. og 8. júlí sama ár. Til þessa rekur Búnaðar-
félag Islands aldur sinn, en árið 1899 færðist starfsemi þess til alls landsins
og nafninu var breytt í Búnaðarfélag íslands. Þá var einnig stofnað til
Búnaðarþings, sem síðan hefur verið æðsta vald í málefnum félagsins.
Reynt verður að greina frá því helsta, sem gert var á afmælisárinu og
tengdist þessum tímamótum, hér á eftir og margt kemur fram í skýrslum
einstakra starfsmanna.
Búnaðarþing, það sextugasta og níunda í röðinni, kom saman 23. febrúar
og lauk störfum 6. mars. Það stóð því í 12 daga. Á þeim tíma hélt það 17
fundi og afgreiddi 50 mál, sem fyrir það voru lögð. Skýrsla um störf
þingsins birtist í 100. árgangi Búnaðarritsins. Fyrir þinginu lá að venju
skýrsla um störf stjórnar og starfsmanna félagsins í ritinu „Til Búnaðar-
þings 1987“.
Stjórn félagsins og búnaðarmálastjóri komu ályktun þingsins á framfæri
og hafa eftir föngum unnið að framgangi þeirra.
Hátíðarfundur. Að ákvörðun reglulegs Búnaðarþings var boðað til
aukaþings til að minnast 150 ára afmælis félagsins. Það þing var haldið 15.
ágúst kl. 2 síðdegis og var hið 70. í röð Búnaðarþinga. Þar var samþykkt
ályktun um gerð heildaráætlunar um þróun landbúnaðarins til næstu alda-
móta.
Að hátíðarfundi Búnaðarþings loknum var haldin samkoma, þar sem
Hjörtur E. Þórarinsson, formaður félagsins, flutti sögulegt ágrip, Jón
Helgason, landbúnaðarráðherra, flutti félaginu kveðjur sínar og ríkis-
stjórnarinnar, Ingi Tryggvason, formaður Stéttarsambands bænda, flutti
kveðjurþess, Stefanía María Pétursdóttir, formaður Kvenfélagasambands
íslands, flutti kveðjur þess, Kristian Nielsen, stjórnarmaður í „De danske
landboforeninger“, flutti kveðjur bændasamtakanna á hinum Norðurlönd-
unum og að lokum flutti Jónas Jónsson, búnaðarmálastjóri, lokaorð og
þakkaði kveðjur og árnaðaróskir. Blásarakvinntett lék fyrir setningu
hátíðarþingsins og á milli atriða á samkomunni. Að hátíðarfundi þessum
loknum voru gestum bornar veitingar í Súlnasal, þar sem hátíðarhöldin
fóru fram.
Þingið var sem önnur Búnaðarþing öllum opið svo og samkoman á eftir.
Heiðursfélögum Búnaðarfélags íslands og öllum fyrrverandi búnaðar-
þingsfulltrúum var sent bréf og þeir boðnir sérstaklega. Mikill fjöldi fólks
heiðraði félagið með nærveru sinni á þessum samkomum. Af öðru því,
sem gert var á árinu til að minnast 150 ára afmælis bændasamtaka á
Islandi, verður greint síðar í þessari skýrslu.
11
L