Búnaðarrit - 01.01.1988, Síða 22
land og Austur-Skaftafellssýslu. Næst var haldinn fundur á Isafirði 7.
október og að lokum með Bsb. Kjalarnesþings í Bændahöllinni 14. október.
Utanlandsferð. Undirritaður fékk nokkurn ferðastyrk frá Búnaðarfélagi
íslands til að sækja Smithfieldsýninguna í London dagana 5. til 12.
desember.
Komur útlendinga
Búnaðarfélagið tók nú sem fyrr á móti eða veitti liðsinni ýmsum erlendum
gestum, sem hingað komu og tengdir eru landbúnaði. í byrjun júní kom
hingað til lands 12 manna sendinefnd frá Noregi, er nefndist „ullutvalget“,
ullarnefndin, og var að kynna sér notkun íslenskrar ullar með tilliti til
séreinkenna hennar. Viðfangsefni þeirrar nefndar í Noregi er að auka
verðmæti þess sem unnið er eða vinna má úr ull af gamla norska fjárkyninu
„spelsau“, en ull þess svipar til íslensku ullarinnar. Emma Eyþórsdóttir,
starfsmaður á Rala, skipulagði dvöl fólksins hér. Flest af þessu fólki var frá
fjallahéraðinu Vinje á Þelamörk og var fyrirliði hópsins Ingvar Sundvor,
kennari í hönnun handiðnaðarhluta við héraðsháskóla í Þelamörk. Einnig
var í hópnum fulltrúi frá landbúnaðarráðuneytinu og varaformaður sauð-
fjárræktarfélagsins norska. Hópur þessi átti daglangan fund í Búnaðarfélag-
inu með ráðunautum í sauðfjárrækt og búnaðarmálastjóra. Áhugi virtist hjá
fólkinu fyrir því að koma á meira samstarfi um iðnað úr ull og notkun á
henni. Vænta má skýrslu frá þessum hópi.
I sambandi við afmælishátíðarhöldin var boðið til landsins fulltrúum
bændasamtakanna á hinum Norðurlöndunum svo og frá Færeyjum og
Grænlandi. Eftirtaldir gestir komu: Frá Danmörku Kristian Nielsen og frú,
frá Færeyjum Frileif Joensen og Jóhannes Dalsgarð, frá Grænlandi Niels
Lund og frú, frá Noregi Per J. Randen og frú og frá Svíþjóð Sture Jönsson
og frú. Enginn gestur kom frá Finnlandi.
Gestirnir voru við opnun landbúnaðarsýningarinnar, og voru síðan
viðstaddir hátíðarhöldin daginn eftir. Að kvöldi þess dags var þeim boðið til
kvöldverðar með stjórn Búnaðarfélags Islands og nokkrum öðrum gestum,
þar á meðal nýkjörnum heiðursfélögum Búnaðarfélags íslands. Þar afhentu
norrænu gestirnir félaginu fagrar og táknrænar gjafir í tilefni afmælisins.
Daginn eftir, þann 16. ágúst, var gestunum boðið í dagsferð um Suðurland
og til kvöldverðar á Þingvöllum. Matthías Eggertsson, ritstjóri, skipulagði
móttökur gesta þessara og var leiðsögumaður þeirra.
Búnaðarfélag Islands fékk á árinu tvo danska sérfræðinga í loðdýrarækt,
þá Konnerup Madsen, fyrrverandi ráðunaut, og Sören Palsgaard, forstöðu-
mann. Þeir komu 10. nóvember og leiðbeindu á námskeiði á Hvanneyri.
Síðan ferðaðist Konnerup Madsen á milli allra helstu loðdýrasvæðanna
og fór um með viðkomandi héraðsráðunautum.
Gunnar Guðmundsson, fóðurráðunautur, skipulagði þessar heimsóknir
og vísast til starfsskýslu hans.
20