Búnaðarrit - 01.01.1988, Síða 44
Ekkert fjármagn mun vera ætlað í frumvarpi til fjárlaga til þeirra fram-
kvæmda.
Ritstörf. Á árinu skrifaði ég í Frey tvær greinar um sæðingarnaut í
Hrísey, sem valin höfðu verið til notkunar í landi á þessu ári og næsta, og
flutti í lok ársins erindi í búnaðarþætti ríkisútvarpsins um holdanaut og
ræktunina í Hrísey. Þá skrifaði ég grein í Morgunblaðið, 1. des., um holda-
nautgriparækt, og nefndi hana: Nýbúgrein, sem hverfur ískuggann. Benti
ég m.a. á nauðsyn þess, að endurskoðuð reglugerð um kjötmat tæki nú
þegar gildi og ákvæði um stuðning við skýrsluhald um holdagripi í frum-
varpi að nýjum búfjárræktarlögum yrðu sett, en frumvarp þetta var sam-
þykkt á Búnaðarþingi 1986. Á árinu varði ég drjúgum tíma í ýmislegt í
sambandi við útgáfu afmælisrits Búnaðarfélags íslands, einkum að efnis-
öflun og samningu tveggja greina um þætti, sem lent höfðu út undan.
Sýning holdabiendinga á landbúnaðarsýningunni BÚ ’87. í ársbyrjun
gerði ég að ósk undirbúningsnefndar tillögur um sýningaratriði, þ.e. 1.
holdablendinga undan Hríseyjarnautum, 2. kjötsýningu á blendingum, 3.
sýningarbás með myndum af gripum úr Einangrunarstöðinni í Hrísey og 4.
stutta kvikmynd um starfsemina í Hrísey. Þessu var vel tekið, og komst allt
í framkvæmd að einhverju leyti eftir því, sem mál þróuðust. Kjötsýningin
varð þó með öðrum hætti nema hvað sérstakur kæliskápur var smíðaður,
sem tók hálfan nautsskrokk og dilksskrokk. Búnaðarfélag íslands og
Einangrunarstöðin í Hrísey kostuðu sameiginlega gerð myndbands með
tali um starfsemi stöðvarinnar. Var sýning á því daglega í gangi og tók 5
mín. Skýringarspjaldi um framleiðslu nautakjöts í landi undan Hríseyjar-
nautum var komið fyrir í kjötsýningardeild og myndum af Hríseyjargrip-
um og nautum, sem sæði hefur verið flutt úr frá Skotlandi til notkunar á
stöðinni, komið fyrir í því húsi, þar sem blendingar voru sýndir.
Óvissa um það, hvaðan og jafnvel hvort leyft yrði að flytja blendinga á
sýninguna og þá með hvaða skilyrðum, varð til þess, að ekki var hægt að
semja við ákveðna bændur um sýningu á ákveðnum gripum og fóðrun á
þeim næstu mánuði á undan sýningu. Var því ekki hægt að láta fylgja
hverjum holdablendingi upplýsingar um þyngingu á dag yfir þann tíma.
Hins vegar var vitað um aldur og fóðrun í stórum dráttum, og voru
gripirnir vegnir, er á sýninguna kom, sjá töflu. Þeim var öllum skilað aftur
til síns heima og því ekki vitað um fallþunga. Hins vegar gaf sýningin rétta
mynd af því, hvernig þeir höfðu verið fóðraðir við venjulegar aðstæður.
Blendingarnir voru frá þrcmur búum í Suöur-Borgarfirði. Eru eigendum
færðar þakkir fyrir að lána gripina að kostnaðarlausu á sýninguna.
42