Búnaðarrit - 01.01.1988, Side 67
II. Skýrsla Kristins Hugasonar
Árið 1987 var mitt fyrsta heila starfsár í
þjónustu Búnaðarfélags íslands, en frá 1.
ágúst 1986 hef ég starfað hjá félaginu sem
ráðunautur í hrossarækt. Vitnað skal til
síðustu starfsskýrslu um ýtarlegri skil-
greiningu starfsins, en svo sem þar kemur
fram er ég í hálfu starfi, sem ég sinni einkum
haust- og myrkustu vetrarmánuðina.
Sumarið 1985, þegar ég vann sem lausa-
maður í hrossaræktinni hjá Búnaðarfélag-
inu, samdi ég tillögur að ýmissi nýbreytni í
leiðbeiningastarfinu í greininni. í þessum til-
lögum var einkum fjallað um skýrsluhald,
kynbótaeinkunnir og útgáfustarf, starfsþættir sem ég er nú ábyrgur fyrir. Á
árinu 1987 birtust nýjar kynbótaeinkunnir fyrir ræktunarhrossin, þær
fyrstu frá því að stjórn B.í. samþykkti að taka kerfið í notkun. Nú á
næstsíðasta degi ársins bárust mér síðan í hendur splunkunýjar niðurstöð-
ur, sem verða birtar strax eftir áramótin. Gagnabankinn var nú í haust
leiðréttur gríðar mikið, heildaryfirferð eldri dóma verður síðan lokið fyrir
keyrslu á næsta hausti. í haust voru í fyrsta sinn tölvufærðar ýtarlegar
upplýsingar um hvert sýnt hross í kynbótadómi og notað nýtt númerakerfi.
Á árinu 1987 komst úrvinnsla, skráning og útgáfa dómsniðurstaðna og
flestra annarra nýrra gagna hrossaræktarinnar í það form, sem undirritað-
ur er nokkuð ánægður með. í marsmánuði kom út ritið Hrossaræktin
1986, tæmandi ársskýrsla um starfsemi B.í. í hrossarækt. Margt var til tafa
við útgáfuna. Vonast ég til að eftirleiðis verði ritið fyrr á ferðinni, en
standist þó samjöfnuð eða helst batni ár frá ári hvað varöar efnistök og
frágang. Ég var þó mjög ánægður með frágang prentsmiðju á, og viðtökur
lesenda við, þessum fyrsta árgangi ritsins undir minni stjórn.
Vinna við ritið Hrossarœktin 1987 er komin nokkuð vel á veg, en þó
styttra en undirritaður vildi og kernur þar fleira en eitt til. Frágangur
dómgagna var ekki nógu góður frekar en fyrr. Mjög hefur verið í tísku að
skamma hestamenn og ræktendur fyrir þá hluti og auðvitað eiga þeir sumir
skömm skilda, en aðrir heiður, sem gera vel. Ég vil þó hér benda á ábyrgð
búnaðarsambandanna hvað þetta varðar. Ráðunautum þeirra ber að hafa
eftirlit með skýrsluhaldi í hrossarækt jafnt sem í annarri búfjárrækt. Nú í
Kristinn Hugason
5
65