Búnaðarrit - 01.01.1988, Qupperneq 69
hrossa, skipulagningu ræktunar, en það var einmitt rannsóknarverkefni
mitt í kynbótafræðináminu úti, og loks um framtíðarmöguleika hrossa-
ræktar sem búgreinar. Skipulagning ræktunar var einnig fundarefni á
fundum þann 13. janúar með skólastjóra og starfsmönnum kynbótabúsins
á Hólum og stjórn Hrossaræktarsambands Skagfirðinga og síðan þann 3.
febrúar með sömu aðilum á Hólum og stjórnum allra hrossaræktarsam-
bandanna á Norðurlandi. Ég var mjög ánægður með hvern áhuga hrossa-
ræktarmenn á þeim fundum sýndu möguleikum nýrra aðferða. í annarri
viku febrúar var svo sem venja er til Ráðunautafundur B.í. og RALA, og
sat ég hluta hans. Þann 10. apríl dæmdi ég ásamt fleirum Skeifukeppni
nemenda Bændaskólans á Hólum, 12. apríl tók ég þátt í aðalfundi
Hrossaræktarsambands íslands á Hvammstanga og dagana 13. til 14. apríl
var námskeið á vegum B.í. fyrir kynbótadómara hrossa, sem var haldið á
Hólum. Ég var þar leiðbeinandi ásamt Þorkeli Bjarnasyni, sem veitti
námskeiðinu forstöðu. Á árinu var ég skipaður í nefnd á vegum landbún-
aðarráðuneytisins, sem vinnur að endurskoðun á starfsemi kynbótabúsins
á Hólum. Formaður nefndarinnar er Ingimar Ingimarsson. Haldnir voru
fundir 14. apríl, 24. júlí, 24. september og 7. desember og eru störfin nú á
lokastigi.
Sýningarnefnd hélt fund 7. september. Ég sat hann og sömuleiðis síðari
fund kynbótanefndar Stóðhestastöðvarinnar á árinu, sem haldinn var 1.
desember. Nú var í fyrsta sinn tekið verulegt tillit til kynbótaspáa folalda
og trippa við val á stöðina. Einnig sýndi ég fundarmönnum fram á
athyglisverða samsvörun kynbótaspáa 4 vetra folanna fyrir árið 1987 og
frammistöðu þeirra við vordómana.
Dagana 30. til 31. október sat ég ársþing Landssambands hestamanna á
Selfossi og 20. nóvember aðalfund Félags hrossabænda í húsakynnum B.í.
í Reykjavík, og ávarpaöi ég fundarmenn. Mér lýst í mörgum atriðum vel á
störf félagsins.
Á árinu mættum við Þorkell Bjarnason á einn sameiginlegan almennan
fund á Hótel KEA þann 5. apríl. Nú í upphafi nýja ársins stefnum við á
fleiri slíka. Þann 6. nóvember var ég við mælingar á Hólum með Þorkeli
Bjarnasyni og sat stjórnarfund kynbótabúsins þá um kvöldið.
Dómstörf og sýningar.
í síðustu starfsskýrslu minni segir að ég sinni dómstörfum viö kynbóta-
dóma svo sem þörf er talin á og starfstími minn leyfir. Á þcim árstíma
þegar dómstörfin standa sem hæst þá er ég bundinn við annað megið starf
mitt. Nú á liönu vori urðu atvikin því valdandi, meiðsli á sýningarhrossum,
að ég gat gefið mig að dómstörfum, en þörf var þá talin á því. Vann ég
fimm daga við forskoðun á Norðurlandi, þá m.a. bæði á Melgerðis- og
Vindheimamclum, undirbjó einnig forskoðunina á Melgerðismelum. Ég
67