Heilbrigðismál - 01.12.1991, Síða 15
HEILBRIGÐISMÁL / Teikniþjónustan sf. - J.R.
Slys. Að meðaltali deyja 83 á ári
af slysförum (61 karl og 22 konur),
þar af 26 í umferðarslysum, 15 í
sjóslysum og drukknunum og 15
við slysafall eða byltu. A tveim ára-
tugum hefur tíðni banaslysa lækk-
að um nær helming. Sjóslysum
hefur fækkað mikið en hlutfalls-
lega meiri fækkun er í banaslysum
af völdum falls eða byltu. Tíðni
umferðarslysa hefur ekki breyst
mikið.
Sjálfsvíg. Ár hvert deyja 34 ís-
Flensa að fjörtjóni
Árið 1988 létust 1818 ís-
lendingar og eru það fleiri á
einu ári en verið hefur síðan
á öldinni sem leið. Á það
ber þó að líta að þjóðinni
hefur verið að fjölga og síð-
ustu áratugi hefur hlutfall
aldraðra hækkað. Hins veg-
ar voru dauðsföllin óvenju
mörg árið 1988 miðað við ár-
in á undan og eftir. Til
dæmis dóu þá 94 fleiri en ár-
ið áður. Aukningin er mest
meðal áttræðra og eldri og
að miklu leyti bundin við
sjúkdóma í öndunarfærum,
ekki síst inflúensu. Vorið
1988 geisaði einmitt skæð in-
flúensa sem er talin bein
dánarorsök í 44 tilvikum
það ár og er þar með mann-
skæðasta inflúensan síðan
1959. -jr.
lendingar úr því sem í dánar-
meinaskrá er nefnt sjálfsmorð og
sjálfsáverki. Karlar eru í miklum
meirihluta. Síðasta áratuginn hefur
tíðnin lítið breyst. í stórum drátt-
um er ekki mikill munur á tíðni
sjálfsvíga hjá körlum frá því innan
við tvítugt og fram yfir sjötugt.
Hlutfallsleg skipting. Nær annað
hvert dauðsfall er rakið til hjarta-
og æðasjúkdóma, fjórða hvert til
krabbameins en'tuttugasta hvert til
slysa (sjá töflu og teikningu).
Helstu dánarorsakir 1986 -90
Karlar Konur
Hjarta- og æðasjúkdómar 46% 45%
- Kransæðasjúkdómar 31% 24%
- Heilablæðing o.fl. 8% 12%
- Aðrir blóðrásarsjúkdómar 7% 9%
Krabbamein 25% 25%
- Lungnakrabbamein 5% 5%
Lungnabólga 6% 10%
Slys 7% 3%
- Umferðarslys 2% 1%
Sjálfsvíg 3% 1%
Annað 13% 16%
Skilgreiningar. Síðan 1981 hefur níunda út-
gáfa alþjóðlegu sjúkdóma- og dánarmeina-
skrárinnar (ICD-9) gilt hér á landi. Helstu
dánarmein eru flokkuð sem hér segir.
Krabbamein: 140-208. Kransæðasjúkdómar:
410-414. Heilablæðing o. fl.: 430-438. Lungna-
bólga: 480-486. Slys: E800-E949. Umferðar-
slys: E810-E819. Sjóslys og drukknanir: E830-
E838, E910. Slysafall og byltur: E880-E888.
Sjálfsmorð: E950-E959. Heimildir. Dánartölur
eftir sjúkdómum, aldri og kynjum voru fengnar
hjá Hagstofu íslands. Tölumar vom staðlaðar
miðað við íslenskan aldursstaðal 1956-75.
Jótias Ragnarsson er ritstjóri Heil-
brigðismála.
Helstu dánarorsakir
1986-1990
Krabbamein
Kransæða-
sjúkdómar
Lungna-
bólga
Anriað
Heila-
blæðing o.fl.
Aðrir hjarta- og
æðasjúkdómar
HEILBRIGÐISMAL 4/1991 15