Heilbrigðismál - 01.12.1991, Síða 18
HHILBRIGÐISMAL / Ljósmj'ndarii
Draumar
- eðli þeirra og tilgangur
Grein eftir Helga Kristbjarnarson
Draumar tilheyra þeim hluta til-
verunnar sem er okkur flestum að
verulegu leyti hulinn. Þrátt fyrir að
menn hafi lengi velt fyrir sér eðli
og uppruna drauma er fátt vitað
með vissu um þetta efni.
Að dreyma
Draumar eru meðvitundar-
ástand í svefni. Annars vegar eru
þeir straumur tiifinninga og hins
vegar atburðarás sem fólk skynjar
og sér fyrir sér. Myndin er skynjuð
í lit og líkist raunveruleikanum.
Þeir sem eru fæddir blindir upplifa
tilfinningar og atburðarás þótt
hugtakið „mynd" hafi ekki merk-
ingu fyrir þá.
Draumar með atburðarás eru lík-
lega einkum á því stigi svefns sem
einkennist af hröðum, óregluleg-
um heilabylgjum, algjörri vöðva-
slökun og greinilegum, tiltölulega
hröðum augnhreyfingum (REM-
svefn). Á öðrum skeiðum svefns
virðist sem á sveimi séu í meðvit-
undinni tilfinningar sem stundum
geta verið hlaðnar merkingu svo
sem óhugnaðartilfinning, gleði eða
hræðsla en ekki virðist fylgja þess-
um draumum neinn ákveðinn
söguþráður. Svo virðist sem fyrstu
draumskeiðin á nóttunni séu að
jafnaði ruglingslegust en draum-
arnir fái meiri söguþráð eftir því
sem líður á nóttina.
Draumsvefn kemur með reglu-
legu millibili á um það bil 90 mín-
útna fresti á næturnar og stendur
mislengi, allt frá nokkrum mfnút-
um upp í hálfa klukkustund. Þessi
draumsvefnskeið eru styst í byrjun
nætur en lengjast er líður á nótt-
ina. Ef fólk er vakið eftir lok slíks
draumaskeiðs getur það venjulega
rifjað upp söguþráð draums sem
fylgir þó oftast ekki venjulegum
lögmálum um tíma og rúm.
Á síðustu öld, fyrir daga nútíma
svefnrannsókna, kom fram sú
kenning að draumurinn myndaðist
á andartaki þar sem langur draum-
ur gæti orðið til á sekúndubroti í
huganum. Þvf til sönnunar var
bent á hvernig utanaðkomandi
áreiti sem vekja mann upp, til
dæmis vekjaraklukka, geta sam-
tvinnast löngum draumi og orðið
eðlilegur hluti draumsins. Nú hef-
ur verið sýnt fram á að lengd
draums er háð lengd draumsvefn-
skeiðs.
Viðbrögð fólks þegar það vaknar
virðast skýra hvers vegna sumir
muna drauma sína en aðrir ekki.
Það virðist vera mögulegt að þjálfa
hæfileika til að muna drauma og
sumir telja að hægt sé að þjálfa sig
til að hafa ákveðna stjórn á draum-
um sínum. Margir halda því fram
að þeir geti að minnsta kosti haldið
áfram með söguþráð draums með
viljastyrk ef þeir hafa verið vaktir
upp af skemmtilegum draumi sem
þeir ekki vilja missa af.
Til er nokkuð sem nefnist gegn-
sær draumur (lucid dreaming). I
18 HEILBRIGÐISMÁL 4/1991