Heilbrigðismál - 01.06.1995, Blaðsíða 6
Erlent
Ærnar ástæður
Nikótín er það efni í
tóbaki sem hefur mest
áhrif en er langt frá því
að vera eina efnið í
tóbaksreyk. í reyknum
eru 4700 efni og efna-
sambönd, þar af eru 43
sem vitað er að geta
valdið krabbameini.
Sígarettureykingar eiga
þátt í myndun fimmtán
tegunda krabbameins,
auka hættu á hjarta- og
æðasjúkdómum og eru
ein helsta orsök lungna-
sjúkdóma. En þar með er
ekki öll sagan sögð. Hér
eru nokkrar aðrar ástæð-
ur fyrir því að skynsam-
legt sé að hætta að
reykja:
• Reykingamenn eru í
meiri hættu en aðrir á að
lenda í slysum, bæði í
umferðinni og í vinn-
unni.
• Þeir sem reykja eiga
erfiðara með að sofna,
hrjóta helmingi meira en
hinir reyklausu og þá
dreymir verr.
• Beinbrot gróa mun
hraðar hjá þeim sem
reykja ekki.
• Reykingar draga úr
einbeitingarhæfni og gera
menn óþolinmóða og
uppstökka.
• Karlar sem reykja eiga
á hættu á að blóðflæði
til kynfæra minnki, en
það hefur áhrif á kyn-
getu.
Scientific Amcrican, maí 1995.
Men's Health, júní 1995.
Þekktar fyrirsætur og
leikkonur eru farnar að
auglýsa mjólk í banda-
rískum tímaritum þar
sem Iman, Lauren Bacall
og Christie Brinkley
(mynd) eru sýndar með
"mjólkurskegg". í texta
auglýsinganna er meðal
annars vakin athygli á
því að í mjólk er kalk
sem ungum stúlkum er
svo nauðsynlegt til að
hindra beinþynningu
þegar líður á ævina. Sér-
staklega er bent á það í
auglýsingunum að fitu-
lítil mjólk geri sama
gagn og venjuleg mjólk
að þessu leyti.
Leila Denmark er elsti
starfandi læknir í
Bandaríkjunum, 97 ára,
segir í American Health.
Meðan sjúklingarnir
halda áfram að koma til
hennar segist Leila ekki
hafa í hyggju að loka
læknastofunni sinni,
sem er í 150 ára gömlu
húsi. Sumir sjúkling-
anna eru barnabörn
þeirra sem Leila sinnti á
fyrstu starfsárunum.
Mikilvægt að
halda jafnvægi
Öldruðum er hættara
en öðrum við að detta.
Og það sem verra er að
afleiðingarnar eru oft al-
varlegar vegna þess að
beinin eru ekki eins sterk
og hjá þeim sem yngri
eru. Nú hefur verið sýnt
fram á að með einföldum
líkamsæfingum megi
draga úr hættu á falli um
allt að fjórðung. Banda-
rískir læknar segja að
leggja beri mesta áherslu
á æfingar sem miða að
því að þjálfa hina öldr-
uðu í því að halda jafn-
vægi.
American Medical News,
maí 1995.
Ekta tennur
alla ævi
Þarf aldrað fólk að
vera með falskar tennur?
Nei, segja bandarískir
tannlæknar. Það er ekkert
sjálfgefið að tennur detti
úr fólki þegar það verður
sjötugt. Tennur losna oft-
ast vegna sjúkdóma í
tannholdi og má bregðast
við því í tíma á einfaldan
hátt. Þeir sem hirða tenn-
ur sínar vel og fara
reglulega til tannlæknis
ættu að geta haldið tönn-
unum lengur en þeir sem
áttu ekki kost á eins
góðri tannlæknaþjónustu
og nú býðst.
American Medical News,
maí 1995.
Svefninn bætir
Þeir sem fá ekki nægan
svefn eru næmari en aðr-
ir fyrir kvefi og öðrum
sjúkdómum. Við stytt-
ingu svefntímans um
nokkrar klukkustundir
dregur úr virkni svo-
nefndra drápsfruma
ónæmiskerfisins. Því er
eins gott að vaka ekki
lengi frameftir, nema
hægt sé að bæta sér það
upp.
American Heallli, mars 1995.
Men's Health, júní 1995.
Gengið við staf
Lífeðlisfræðingar í
Micigan hafa sýnt fram á
að auka megi orku-
brennslu í gönguferðum
um fjórðung með því að
ganga með göngustafi
(sem líkjast skíðastöfum).
Á þennan hátt reynir
meira en annars á efri
hluta líkamans.
Men's Health, október 1995.
6 HEILBRIGÐISMÁL 2/1995